25.01.1943
Neðri deild: 41. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1362 í B-deild Alþingistíðinda. (110)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Finnur Jónsson:

Ég er hv. þm. Borgf. þakklátur fyrir þessar upplýsingar. Ég sé, að mig hefur misminnt, að nokkur sérstök þál. hafi verið samþ. í þessu áburðarmáli. Hitt er aftur rétt hjá mér, að verðlækkunin á áburðinum mun tæplega geta heyrt undir dýrtíðarl. eða verið samkv. ákvæðum eða heimild í þeim.

Ég minnist þess, að þegar þetta mál var til umr. í fjvn., þ.e.a.s. flutningsgjöldin sérstaklega, á sumarþinginu, þá komu fram ýmsar aths. hjá fjvnm. um það, að flutningsgjöldin, sem Eimskipafélag Íslands krefðist fyrir áburðinn, næðu ekki neinni átt í samanburði við flutningsgjöld fyrir aðrar vörur. Mun það rétt vera hjá hv. þm. Borgf., að um þetta mál hafi þó ekki verið gerðar neinar samþykktir í fjvn. Það lá fyrir beiðni um meðmæli með því, að þessi flutningsgjöld yrðu greidd. En slík meðmæli voru ekki gefin í n. Þess vegna hef ég beðið hæstv. atvmrh. að athuga þetta.

Viðvíkjandi því, sem ég skaut hér fram um smjörskömmtunina, þá var spurning mín ekki sprottin af því, að ég óttaðist smjöreklu sérstaklega, heldur af hinu, að ég taldi, að eins og nú kynni að vera um búið, mundi vera hægt að misnota þessa verðlækkun á smjörinu á þann hátt, að menn gætu keypt smjör með lækkuðu verði í búðum og selt það aftur og fengið á það uppbót, meðan smjör er ekki skammtað. Meðan ekki eru gefin nein fyrirmæli um það, hve mikið smjör hver maður megi kaupa, sýnist þessi leið til misnotkunar vera fær. Og ég vil spyrja hæstv. ríkisstj., hvort nokkrar ráðstafanir hafi verið gerðar til þess að koma í veg fyrir misnotkun í sambandi við lækkun verðsins á þessari vöru.

Út af fyrirspurn minni um þær ásakanir til dómnefndar í verðlagsmálum, að hún hafi brotið lög landsins og fyrirskipanir hæstv. ríkisstj., vil ég segja, að ég tel það miður farið, að svör við þeirri fyrirspurn þurfi að bíða. Ég fæ skilið, að ríkisstj. í heild mundi ekki fylgjast með svo mikilsverðum atriðum, að svör við þeirri fyrirspurn þurfi að bíða þess, að hæstv. viðskmrh. sé viðstaddur til að svara þessu. Þar sem hér er um að ræða grundvallarstarf ríkisstj., viðist harla ólíklegt, að hver sem væri úr ríkisstj. mundi ekki geta sagt, hvort nokkur fótur er fyrir þessum ásökunum eða ekki. Hins vegar, ef svo er ástatt, þrátt fyrir von mína, að enginn viðstaddur úr ríkisstj. treysti sér til að hnekkja þessum mjög alvarlegu ásökunum, verð ég að sjálfsögðu að láta mér lynda að bíða, þangað til hæstv. viðskmrh. kemur.