27.11.1942
Neðri deild: 6. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 843 í B-deild Alþingistíðinda. (1105)
11. mál, laun embættismanna
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Frv. þetta, sem er flutt á þskj. 12 um breyt. á launal., er um nokkra breyt. á launakjörum dýralækna. Samkv. 14. gr. launal. eru byrjunarlaun dýralækna kr. 2500.00, en í l. gr. þessa frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að byrjunarlaun hækki um kr. 1000.00 og verði kr. 3500.00. Hækkun sú, sem gert er ráð fyrir að verði á laununum, er í samræmi við það, sem verið hefur í 14. gr. gildandi launal., að hámarkslaun verði kr. 1000.00 hærri en nú er.
Tilgangur þessa frv. er sá að tryggja sem almennust not bænda af dýralæknunum, en eins og launakjörum dýralækna er háttað, verða afskekktustu byggðarlögin út undan, og hefur reynslan orðið sú, að þessi byggðarlög hafa ekki möguleika til þess að skapa dýralæknum lífvænleg kjör. Þetta er af því, að þar, sem samgöngur eru vondar á landi, veigra bændur sér við að sækja dýralækni, vegna þess hve örðugt er að ná í hann, og því er nauðsynlegt, að hann hafi búsetu sem næst.
Í l. um dýralækna, nr. 24 1939, er gert ráð fyrir, að dýralæknar skuli vera 6 í landinu, 2 í Vestfirðingafjórðungi, 2 í Sunnlendingafjórðungi, 1 í Austfirðingafjórðungi og 1 í Norðlendingafjórðungi. Ástandið er þannig, að Vestfirðingafjórðungur hefur einungis einn dýralækni, og hann hefur setu í Borgarnesi, en á öllu svæðinu þaðan og til Vestfjarða er enginn dýralæknir. Fyrir nokkrum árum tók dýralæknir sér búsetu á Ísafirði, en vegna þess, að launakjör voru léleg og praksís lítil á svæðinu, sem að liggur, varð hann að hrökklast þaðan. Síðan er þessi landshluti dýralæknislaus. Ég hygg ekki þurfa um það frekari orð. Öllum má augljóst vera, að þörf er fleiri sérmenntra manna til dýralækninga. Þegar l. um dýralækna frá 1939 voru samþ., var gert ráð fyrir, að allir landshlutar fengju bætt úr dýralæknisþörf sinni og Vestfirðir fengju dýralækni á Ísafirði. Búseta dýralæknis skal ákveðin af ráðuneyti, og þar sem ráðuneyti hefur einu sinni áður sett dýralækni umdæmisins á Ísafjörð, en þar í nánd eru mannflestar og einna víðlendastar byggðir, tel ég þann stað of sjálfsagðan til þess, að nein bein þörf sé til að lögákveða búsetuna þar, og sleppi að bera fram um það till. Þar sem dýralæknar eru ekki fleiri en 6 á landinu, hefur samþykkt þessarar 1000 kr. launahækkunar ekki mikla eyðslu í för með sér. En launahækkunin virðist líklegasta ráðið til þess að tryggja, að menn, sem þegar eru menntaðir í greininni eða nú stunda nám í henni, setjist að í landshlutum, sem þurfa þeirra, þótt ekki sé um tekjumikla praksis að ræða, og geti þar orðið landbúnaði að liði.