15.12.1942
Neðri deild: 15. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 845 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)
11. mál, laun embættismanna
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. — Ég þakka hv. landbn. fyrir það, hve vel hún hefur tekið frv. mínu um breyt. á launalögunum, þ.e. um hækkun á launum dýralækna frá því, sem nú er.
Síðan ég flutti þetta mál við l. umr., hef ég átt tal við suma af dýralæknum landsins um það, hvort sú breyt., sem frv. mitt gerir ráð fyrir, væri á þá lund, að þeim tilgangi yrði náð, að afskekktir landshlutar fengju dýralækna, og hafa þeir allir tekið undir þá skoðun, að aðalþröskuldurinn í vegí þess, að dýralæknar setjist að í afskekktum landshlutum, sé sá, að launin séu svo lág og um litla „praksis“ sé að ræða.
Með breyt. þeirri, sem gert er ráð fyrir í frv., er ætlazt til þess, að grunnlaun hvers dýralæknis hækki um 1000 kr. frá því, sem nú er.
Í lögum um dýralækna, nr. 24 1939, er gert ráð fyrir sex embættisdýralæknum hér á landi.
Er hér því farið mjög hóflega í sakirnar og ríkissjóði ekki bundnir miklu þyngri baggar en þegar hvíla á honum.
Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta mál. Ég er þakklátur hv. frsm. og landbn. fyrir góðar undirtektir, og það er álit mitt, að ef þetta frv. verður samþ., muni leysast nokkuð úr vandræðum afskekktra landshluta. Ég vil að lokum benda á það, að við nám erlendis eru tveir menn, sem ætla að leggja stund á dýralækningar. Það væri mjög æskilegt að geta tryggt það, að landbúnaðurinn fengi að njóta starfskrafta þessara ungu manna, þegar þeir koma heim, og mundu þá þeir landshlutar, sem nú eiga erfiðast fyrir, væntanlega fá nokkuð greitt úr vandræðum sínum. Ég hef svo ekki þessi orð fleiri, en ber aðeins fram þá ósk, að þetta mál fái sem greiðasta göngu í gegnum þingið.