19.12.1942
Neðri deild: 22. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (1127)

79. mál, innheimta ýmis gjöld 1943 með viðauka

Ásgeir Ásgeirsson:

Á síðasta vetrarþingi var þetta frv. flutt af fjhn. Ed., en dagaði þá uppi í þessari hv. d. Frv. er því flutt aftur samkv. tilmælum fyrrv. hæstv. fjmrh. Er óþarfi að gera frekari grein fyrir frv., en nauðsynlegt er, að það nái samþykki fyrir áramót, svo að hægt sé að innheimta þennan viðauka strax á næsta ári.