17.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Rannsókn kjörbréfa

Forsrh. (Ólafur Thors):

Þegar ég heyrði hv. þm. S.- Þ. (JJ) tala, datt mér í hug saga af framboðsfundi, er einn af merkustu stjórnmálamönnum Breta bauð sig í fyrsta skipti fram til þings. Hann var þá ungur og óreyndur. Gamall maður reis upp í salnum og sagði við frambjóðandann að hafa sig hægan, því að hann myndi vel eftir því, er faðir hans fór með söluvagn um göturnar með asna fyrir.

Lloyd George svaraði: Vagninn hans föður míns er löngu kominn fyrir kattarnef. En mér þykir vænt um að heyra, að asninn lifir enn.

Ég hef oft á síðari árum, þegar ég hef haft vinsamlegar viðræður við Jónas Jónsson, verið að furða mig á því, hvað væri orðið af asnanum, sem hér á árum áður var beitt fyrir Framsóknarvagninn. Ég heyrði það núna, að hann lifir enn. Þegar ég heyrði Jónas Jónsson lýsa yfir því, að gremja Framsfl. stafaði alls ekki af því, að Bjarni Bjarnason hefði fallið, heldur af því, að þar hefði Sjálfstfl. beðið sinn stærsta ósigur, þá segi ég eins og Morgunblaðið: Vér brosum!

Ræðumaðurinn talaði um, að hann hefði stefnt Morgunblaðinu út af ummælum þess um múturnar. En því er ekki að leyna, að það hefur lengi lifað sá orðrómur; að einmitt Framsfl. hafi notað ríkisfé til þess að hafa áhrif á úrslit kosninga. (BSt: Það er líka hægt að múta með bílum.)

Ég efast ekki um, að framsóknarmenn kunni allar leiðir til þess að múta mönnum.

Ég tek undir með Gunnari Thoroddsen um það, að kjörbréfanefnd fái mál þetta til rannsóknar og þá ekki sízt, hvernig vottorðið úr Ólafsvík er til komið. En þetta þarf að rannsaka. Og eftirtektarvert er það, að í kjörbréfanefndinni fékkst enginn til þess að gangast við þessum króa, enginn þóttist vita, hverjum hann hefði verið sendur. Það eina, sem vitað er, er það, að sendandi er liðhlaupi úr Sjálfstæðisflokknum og hefur fengið bíl — eins og Páll Zóphóníasson og Sveinbjörn Högnason. En það er ekki gaman að lenda í slíkum félagsskap.

Það er náttúrlega til vanvirðu, að nokkur þingmaður skuli sýna Alþingi þá fyrirlitningu að hefja hér umræður um þetta ómerkilega vottorð þessa lítilmótlega vottorðsgjafa.

Ef ég færi að segja allar þær slúðursögur, sem mér hafa borizt um kosningarnar og Framsóknarflokkinn, þá mundi víst mörgum verða skemmt. En mér hefur aldrei dottið í hug að vanvirða sjálfan mig, hvað þá þessa virðulegu samkomu, með því að leiða þær hér inn í þingsalina. En að þessu gefna tilefni skal ég aðeins drepa á, að t.d. var því haldið á lofti, að heil bílhlöss af brennivíni hafi verið keyrð í eitt framsóknarkjördæmi og í öðru kjördæmi hefðu framsóknarbændur á einum síðasta kjörfundi allir greitt kaffibollann sinn á greiðasölustað með flunkunýjum hundraðkrónuseðlum. Og svo langt var gengið, að því var jafnvel hvíslað að mér, að jafnvel einn vel þekktur framsóknarmaður hefði ætlað að kaupa af sér eitt meinhornið í framboði með því að bjóða honum sæti í Menntamálaráði. (JJ: Þetta eru lygasögur.) Já, þetta er ein lygasagan, álíka eins og sögurnar úr Ólafsvík.

En út úr því, að merkur Ólafsvíkingur hafi látið þau orð falla, að ef Bjarni Bjarnason yrði kosinn, þá væri rétt að víkja ákveðnum vegavinnuverkstjóra frá, vil ég hvetja til þess, að rannsókn fari fram á því, hvort og hvernig slíkir verkstjórar hafi misnotað farartæki ríkissjóðs í þágu ákveðinna flokka.

Út af gróusögunum um síldarmélið læt ég nægja að upplýsa, að í mörg undanfarin ár hafa bændur í 1 eða 2 hreppum fengið síldarmjöl frá hlutaðeigandi félagi, eins og líka það, að innan þessara veggja sitja menn úr flokki Jónasar Jónssonar, sem lögðu hart að mér að tryggja sér meira síldarmjöl en öðrum, hvað sem þeir hafa ætlað við það að gera.

Út af samanburði Jónasar Jónssonar á Bjarna Bjarnasyni og Gunnari Thoroddsen fær mig að sönnu enginn til að hallmæla Bjarna. En náttúrlega er það broslegt, þegar J.J. gerir hann að ofurmenni, en telur Gunnar Thoroddsen bara snotran dreng úr Rvík.

Gunnar Thoroddsen hefur eitt hæsta próf frá háskólanum. Hann hefur orðið yngstur þingmaður hér. Hann hefur kornungur orðið framkvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokksins. Hann væri orðinn prófessor fyrir löngu, hefði hann ekki verið rangindum beittur. Hann er orðinn prófessor. Þegar Sjálfstfl. þurfti að skipa í eitt vandasamasta starf, í gerðardóminn, þá valdi flokkurinn hann. Og nú er G. Th. orðinn þingmaður að nýju. Væntanlega er það ekki eingöngu af því, að hann er snotur piltur úr Rvík.

Þegar þetta mál, þessar slúðursögur um G. Th., verður rannssakað, þá vænti ég, að margar svipaðar sögur verði rannsakaðar viðvíkjandi kosningu Bjarna Bjarnasonar, en þær eru margvíslegar.

Yfirleitt verður margt, sem er tilefni til a rannsaka, ef út í það er farið, og harma ég það sízt. En það skal ég játa, að ég hefði kunnað því betur, að það hefði verið einhver annar en Framsfl., sem færi fram á slíka rannsókn. Og þó ég sé ekki spámaður, þá segir mér svo hugur um, að englarnir verði ekki allir í Framsfl., að þeirri rannsókn lokinni.

Fundi frestað.

Miðvikudaginn 18. nóv., kl. 2,15 miðdegis, var fundinum fram haldið.