05.01.1943
Neðri deild: 25. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (1202)

83. mál, skógrækt

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Frv. þetta er flutt af landbn. og er um breyt. á l. nr. 100 14. maí 1940, um skógrækt. Með þeim Iögum var gert ráð fyrir, að jarðeigendur skyldu styrktir til þess að girða skóglendi, sem er í hættu, á þann hátt, að ríkið borgaði girðingarefnið, en jarðeigendur leggi fram ókeypis alla vinnu o.fl., en nú hefur komið í ljós við framkvæmd laganna, að sums staðar hagar svo til, að skóglendi er í. hættu, vegna þess að landeigendur geta ekki tekið að sér þann hluta kostnaðar, sem þeim er ætlaður samkv. l., og er þetta sérstaklega hættulegt, þegar um er að ræða land, sem liggur undir skemmdum, þannig að af því geti leitt uppblástur og eyðileggingu landsins. Þannig er það í nokkrum skógarhéruðum, að skóglendið er ekki friðað og skepnur ganga í því, þannig að það virðist vofa yfir skóglendinu stórfelld eyðilegging, og skógargróðurinn er að blása upp, en eigendur skóglendisins treysta sér ekki eins og nú stendur að leggja fram þá vinnu er lögin áskilja til þess að friða landið og varna eyðileggingunni. Það er þess vegna álit Skógræktarfélags Íslands og skógræktarstjóra, að gera þurfi breyt. á I. og setja inn í grein, sem heimili, að ríkissjóður leggi fram stofnkostnað við slíkar girðingar gegn því, að landeigandi annist viðhald. En samkv. ákvæðum, sem í gildi eru, á ríkissjóður að leggja til efnið, en skógareigendur kosti vinnu og flutning á staðinn eins og áður er sagt. Eins og nú er háttað um allan kostnað við vinnu o.þ.h., er þetta svo stór liður og um svo mikla manneklu að ræða, að það er ekki eðlilegt, að menn treysti sér að leggja út í þetta. Ætlazt er til, að tekin verði upp sérstök fjárveiting í þessu skyni í fjárlögum og fyrir liggi skýrsla frá skógræktarstjóra um það, hvaða land falli undir þessa fjárveitingu, svo að á hverjum tíma sé fullkomið eftirlit með því, hvernig þetta fé er veitt.

Landbn. er einhuga um, að sjálfsagt sé að sinna þessu máli og veita því þann stuðning, sem gæti komið að gagni. Ég vil svo aðeins bæta því við, að skógræktarmálin eru ein af okkar allra merkilegustu málum, en þau eiga erfiðast uppdráttar vegna þess, að árangurinn af þeim framkvæmdum, sem þarf að gera, kemur ekki í ljós fyrr en eftir svo langan tíma, en eins og fjárhagsástæður baenda hafa verið á undanförnum árum, hafa þeir ekki treyst sér til að leggja í annað en það, sem gæfi fljótan arð. Þess vegna hefur skógræktarmálunum verið sinnt minna en skyldi, en nú er að vakna áhugi fyrir þeim, og þess vegna er ástæða til þess, að ríkið láti eitthvað koma á móti, en þó sérstaklega, þegar lítur út fyrir, að verðmætt land sé að komast undir örtröð.