12.03.1943
Efri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Ég vil aðeins þakka hæstv. atvmrh. fyrir upplýsingar þær, sem hann hefur gefið.

Hann gat þess, að reglugerð um hleðslumerki væri væntanleg næstu daga. Vildi ég mega vænta þess, að það yrði frekar í dag en á morgun, því að hennar er mikil þörf.

Mér er kunnugt um, að skipaskoðunarstjóri hefur hliðrað sér hjá því stundum að vinna að skipaskoðun og borið við, að sig vantaði starfskrafta. Vil ég því láta í ljós ánægju mína yfir því, að hann skuli nú hafa fengið heimild til að ráða sér starfsmenn eftir þörfum. Tel ég þörf á því, að honum sé tilkynnt þetta, því að ég er hræddur um, að hann standi í annarri trú. Ég vil þakka hv. ríkisstj. fyrir það, að hún ætlar að láta fara fram rannsókn út af Þormóðsslysinu.

Hv. þm. Barð. tók mjög undir mál mitt, og þótti mér vænt um það. Tel ég því vel farið, að útgerð skipsins fái tækifæri til að hreinsa sig af þeim orðrómi, sem gengur út af þessu efni. það, sem hv. þm. Barð. sagði um skipaskoðun hér á landi, að hún væri fullkomnari en með öðrum þjóðum, get ég ekki fallizt. Ef það væri rétt, væri eftirlit annarra þjóða með skipum sannarlega ekki svo litið ábótavant. Ég veit, að hv. þm. Barð. þekkir ýmis dæmi, sem sýna, að ástandið mætti vera öðruvísi en það er í raun og veru hér. 1941 var keypt til landsins skip frá útlöndum, sem reyndist mjög fúið, þegar hingað kom. Það var notað í siglingar, en áður gert við það. Nokkrum hluta af þilfari þess var mokað burtu með skóflum. Vil ég að lokum þakka hæstv. ríkisstj. fyrir að hafa hert á eftirliti í þessu efni.