11.01.1943
Neðri deild: 29. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (1232)

97. mál, háskólabókavörður

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. — Þetta frv. á þskj. 146 fer fram á, að stofnað verði embætti háskólabókavarðar við Háskóla Íslands. Í grg. er það tekið fram, hvers vegna menntmn. hefur tekið að sér að flytja þetta frv. Vil ég þó segja hér nokkur orð um frv. til frekari skýringar.

Áður en háskólinn flutti inn í sitt núverandi húsnæði, voru bókasöfn hjá hverri deild háskólans út af fyrir sig, en þegar flutt var í háskólabygginguna, var kleift að sameina þessi söfn í eitt safn, sem þá var orðið allmikið, eða um 30 þús. bindi. Eftir þetta bættist svo safn dr. Benedikts S. Þórarinssonar, og var þá sýnt, að ekki varð komizt hjá, að sérstakur bókavörður yrði fenginn til þess að sjá um safnið eftir því, sem með þurfti. Var þá ráðinn til þess starfs, með samþykki ríkisstj., ágætur maður og fróður, Einar Ól. Sveinsson, dr. phil. Á fjárl. frá því 1941 hafa honum verið greiddar 6000 kr., og sama upphæð er honum og ætluð á fjárlfrv. 1943. Að sjálfsögðu hefur honum og verið greidd verðlagsuppbót á þessa upphæð.

En þrátt fyrir þetta er starfið enn í lausu lofti, þar sem það á eigi stoð í l., og er það óviðunandi, og munu eigi geta með rökum átt sér stað deilur um það atriði. — Um kostnaðarhliðina er það að segja, að áætlað er, að bókavörður hafi sömu laun og prófessorar við háskólann. Fyrir 3 árum var tekinn upp sá siður að greiða þeim 2000 kr. til uppbótar, og mundi þá sú breyting eiga sér einnig stað með háskólabókaverðina með því að lögfesta starf hans og ætla honum sömu laun og prófessorum. — Ég ætla svo ekki að hafa orð þessi fleiri, en legg til, að frv. verði vísað til 2. umr.