16.01.1943
Neðri deild: 34. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (1237)
97. mál, háskólabókavörður
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. — Ég á hér litla brtt. á þskj. 182. Hún er flutt í því skyni að samræma launin við þetta fyrirhugaða embætti launum landsbókavarðar, en í frv. eru þau ákveðin 500 kr. hærri á ári, heldur en laun bókavarðar. Mér þykir ekki vera samræmi í því, að bókavörður við prívatstofnun, þó háskólabókasafn sé, sé hærra launaður heldur en landsbókavörður, og vil láta hann njóta sömu launakjara og landsbókavörð. Ég vona, að menn skilji það, að þetta er flutt til samræmis, sem ég tel þurfa að vera í launalögum. Ég skal hins vegar viðurkenna, að í launalögunum er ekkert samræmi, enda er svo komið, að mikill hluti opinberra embættismanna fær nú launauppbætur utan við launalög, og utan við alþingissamþykkt. Fyrrv. stj. hefur bara borgað þau laun til embættismanna sem henni sýndist, án tillits til hvað væri lög og hvað þingvilji væri fyrir. Það er hin mesta þörf á því að endurskoða launalögin, og það hefur oft verið reynt að ná samkomulagi um það, en það hefur ekki tekizt hingað til, og ég geri ráð fyrir, að það verði ekki heldur nú. Þess vegna flyt ég þessa brtt., og vona ég að hún verði samþ.