04.02.1943
Efri deild: 47. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 863 í B-deild Alþingistíðinda. (1245)
97. mál, háskólabókavörður
Frsm. (Kristinn Andrésson):
Herra forseti. Það er óþarft að hafa nema örfá orð um þetta frv. við þessa umr. Það er komið frá menntmn. hv. Nd. Og menntmn. þessarar hv. d. hefur haft það til athugunar og orðið sammála um að mæla með því, að það verði samþ. Þetta frv. er um stofnun embættis bókavarðar við Háskóla Íslands. Og í raun og veru er hér ekki um annað að ræða en að lögfesta sem embætti starf, sem hefur verið unnið undanfarin ár og hafa verið veittar til ákveðnar upphæðir í fjárl. fyrir 1941 og 1942. Bókasafn þetta er, eins og hv. þm. er kunnugt, orðið allmyndarlegt, þar sem bæði eru komin til þess skjöl próf. Finns Jónssonar og bókasafn dr. Benedikts Þórarinssonar.
Ég veit, að allir hv. þdm. munu vera sammála um þetta frv., og tel því ekki ástæðu til að fara um það fleiri orðum.