12.03.1943
Efri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.
Gísli Jónsson:
Þetta skip hafði haft færiskírteini til að sigla hvert sem er. Eftir bráðabirgðaskoðun fékk það leyfi til að sigla, bundið við sex mánuði, frá því að það kom hingað til lands. Ég held, að skipaskoðuninni sé ekki um að kenna hér yfirleitt. Ég þekki vel manninn, sem hér á hlut að máli, og held, að ekki sé hægt að finna öllu samvizkusamari mann en hann er og hefur verið öll þau ár, sem ég hef þekkt hann.