19.03.1943
Neðri deild: 79. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1375 í B-deild Alþingistíðinda. (129)

Fyrirspurnir um stjórnarráðst. o. fl.

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Ég var ekki staddur hér, þegar þessi fyrirspurn var fyrst borin hér fram, en hæstv. dómsmrh. gaf mér skýrslu um málið. Ég hef nú þegar gert ráðstafanir til þess, að leitað. verði eftir samningum þeim, sem hv. þm., Ísaf. benti á, að reynt yrði að gera. Þetta er mjög alvarlegt mál, og þarfnast skjótra úrbóta, og vænti ég því að geta bráðlega gefið upplýsingar hér í þinginu um árangur af þeim málaleitunum við herstjórnina, sem þegar eru hafnar.