06.02.1943
Efri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (1369)
48. mál, hafnargerð á Hornafirði
Gísli Jónsson:
Herra forseti. – Hv. frsm. þessa máls, 1. þm. S.-M. (IngP), er ekki viðstaddur, en ég sem formaður n. get upplýst hér, að n. hefur kynnt sér þetta mál mjög ýtarlega. Hún hefur borið þessa breyt. saman við aðallögin og séð, að þar eru mjög nákvæmlega settar reglur um það, hvernig skuli farið með allt þetta mál, og að hvorki hreppurinn né hafnarsjóður geta gert þar nokkrar framkvæmdir, hvorki um lántökur né verklegar framkvæmdir eða annað, sem lýtur að þessu, nema með leyfi viðkomandi ráðuneytis. Hefur n. því ekki séð ástæðu til að gera brtt. við frv. og leggur einróma til, að það sé samþ.