25.11.1942
Neðri deild: 4. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)

7. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Flm. (Ingólfur Jónsson):

Frv. það, sem hér liggur fyrir, var flutt á sumarþinginu, en náði ekki fram að ganga þá, vegna þess hvað tími var naumur. Nú höfum við flutt þetta frv. á ný, vegna þess að málið er þannig vaxið, að það þolir ekki bið.

Svo sem tekið var fram í framsögu á sumarþinginu og einnig í grg., er það ljóst, að fyrirhleðsla Þverár og Markarfljóts má ekki dragast öllu lengur, og þarf að vinna að því máli með fyllsta dugnaði og hraða því eins og unnt er. Okkur Rangæingum, sem erum þarna næstir, er þetta vitanlega ljósara en öðrum, en þeim, sem um veginn fara, ætti að vera ljóst. að mikill farartálmi væri að, ef þau vötn, sem á þeim vegi eru, væru ekki brúuð, en það er kunnugt, að brýrnar á Þverá, Affalli og Álum eru bráðabirgðabrýr, vegna þess að ákveðið var að hlaða fyrir Þverá og veita henni allri í Markarfljót, en eftir að það hefur verið gert, er ekki þörf á veglegum brúm á þessi vötn, og þess vegna voru aðeins byggðar bráðabirgðabrýr. Ef svo færi, að enn drægist mjög eða jafnvel stöðvaðist fyrirhleðsla Þverár, gæti svo farið, að ríkið yrði að byggja brýr á ný á áðurtalin vötn, og ef til þess kæmi, væri ef til vill mörgum hv. þm. ljóst, að betra hefði verið að hraða fyrirhleðslunni og ljúka verkinu til þess að þurfa ekki að byggja nýjar brýr með miklum kostnaði.

Það, sem farið er fram á í þessu frv., er, að ríkissjóður taki að sér að greiða allan kostnað við þessa fyrirhleðslu, en samkv. l. er gert ráð fyrir, að sýslusjóður greiði 1/8 kostnaðar. Í fjárlfrv. fyrir árið 1943 er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram 125 þús. kr. til þessarar framkvæmdar. Þessi áttundi hluti, sem við leggjum til, að ríkissjóður taki á sig af sýslufélaginu, er því eigi mjög stór upphæð, en munar fámennt sýslufélag talsvert miklu. Slík upphæð reiknast smámunir fyrir ríkissjóð, og ef ríkissjóður getur staðið undir 1/8 hlutum, má einnig telja, að hann geti bætt á sig þessum 1/8 hluta.

Vegamálastjóri er kunnugur þessu máli austur þar. Er honum ljóst, að verkinu þarf að hraða svo sem verða má. Þeir, sem eru að mestu leyti ókunnir þessum málum, munu taka tillit til hans tillagna og taka afstöðu til málsins í samræmi við þær. Við flm. gerum okkur þess vegna beztu vonir um, að mál þetta nái fram að ganga þegar á þessu þingi.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið við þessa umr., en óska, að hv. d. vísi því til 2. umr. og fjhn.