18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (IngP):

Svo sem hv. þingheimi er kunnugt, hefur 1. kjördeild lagt til, að tekin verði gild öll kjörbréf þau, er hún hafði til meðferðar. Um eitt kjörbréfanna hefur þó orðið nokkur ágreiningur. Nú eru hér margir á mælendaskrá og líkur til, að umræðum haldi áfram um skeið. Ég hef því hugsað mér að bera nú þegar undir atkv. öll kjörbréf í þessari kjördeild, þau er enginn ágreiningur er um. Verði þau samþ., er hægt að láta alla hina nýju hv. þm. vinna drengskapar heit, því að sá hv. þm., sem á kjörbréf það, er deilt hefur verið um, hefur áður getið á Alþ. og þarf því ekki að vinna drengskaparheit.