11.01.1943
Neðri deild: 29. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (1402)

7. mál, vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Sveinbjörn Högnason:

Hv. 2. þm. Rang. virðist ekki vera vel kunnugur málinu. Hann var að tala um það áðan, ef þessi breyt. yrði ekki gerð með 3. lið 1. gr., þá ætti sá varnargarður að greiðast að 1/8 úr sýslusjóði, en í l. stendur, að ekki sá garður einn, heldur allir aðrir garðar í Fljótshlíð skuli greiðast að 1/8 úr ríkissjóði. Með brtt. n. á því að fella burt þessa skyldu, sem hvílir á ríkissjóði. Þetta ve:t ég, að hv. þm. sér, ef hann bara athugar það. Og það er víst, ef þessi umræddi varnargarður verður ekki settur innan við allar byggðir, inn hjá Þórólfsfelli, þá þarf á fleiri varnargörðum að halda.

Hitt var ekki rétt hjá hv. 1. flm. frv., að ég segði, að frv. væri sýslunni í óhag. Þvert á móti tel ég frv. vera stórbót fyrir sýsluna. En það er spursmál með þessar 175 þús. hvort rétt sé að sleppa þeim ákvæðum í l., sem hagkvæm eru sýslufélaginu, fyrir þessar 175 þús., því að ég hygg, að þessi ráðstöfun yrði sýslufélaginu í óhag, þegar fram í sækir. eins og ég hef þegar bent á.

Þess vegna tel ég það víst, að það sé ekki vilji, heldur sé byggt á misskilningi flm., a.m.k. þess flm., sem sæti á í n., að það sé verið stórum að draga úr hlunnindum þeim, sem sýslan hefur rétt á samkv. núgildandi l.