17.12.1942
Neðri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 904 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)
55. mál, eignarnámsheimild á Höfn í Siglufirði
Flm. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. — Með þessu frv., sem flutt er samkv. beiðni bæjarstj. Siglufjarðar, — og sú beiðni var samþ. alveg samhljóða með atkv. allra bæjarfulltrúanna —, er farið fram á, að bærinn geti, ef hann óskar eftir, orðið eigandi að öllum jörðum á Siglufirði. Svo sem öllum er kunnugt, tilheyrir Siglufirði dálítið sveitahérað, og hér er farið fram á, að kaupstaðurinn geti tekið eignarnámi jarðirnar við fjarðarbotninn. Margar af jörðunum eru komnar í bæjarins eigu: Hólar, þar sem bærinn rekur stórt kúabú, Saurbær og Skarðdalsskot, — svo að þetta er ekki annað en að hjálpa bænum í starfi sínu. Fyrsta jörðin, sem talað er um, er jörð, sem er innan kaupstaðarins sjálfs, en mikill hluti kaupstaðarins stendur í landi jarðarinnar. Bærinn á 1/6 hluta jarðarinnar, en einstakir menn 15/16. Þetta hefur verið sérstaklega erfitt, svo að þegar bærinn hefur þurft að leggja götu og torg, hefur hann oft orðið að kaupa landið undir götuna hærra verði en það hefur kostað að leggja hana. Það er erfitt fyrir bæinn að búa við þetta skipulag, að geta ekki haft hönd í bagga með því, hvernig bærinn byggist, en hann byggist dreift án tillits til þess, hvort bærinn getur lagt götur, vatnsleiðslur o.þ.h. Á þessu landi hefur verið byggt mikið á síðari árum, en lóðaleiga hefur hækkað svo mikið, að hún er orðin tíföld á við það, sem hún var fyrir stríð. Þetta horfir til stórra vandræða, því a~ þótt menn geti risið undir þessu nú, vegna þeirra miklu peninga, sem menn hafa, er það mikið alvörumál fyrir fólk, sem hefur verið að koma sér upp húskofum, að þurfa að standa undir þessu. Loks hafa eigendur Hafnar notað sér þetta til þess að geta tekið ágóða af atvinnurekstri á jörðinni, og hefur jafnvel gengið svo langt, að þurft hefur leyfi eigendanna til þess að breyta um atvinnurekstur og sérstakt leyfi um það, hvernig mætti byggja á lóðinni. Slík afskiptasemi lóðareigenda er ekki við hlítandi. En jafnvel þótt ekki séu þær ástæður fyrir hendi, sem þarna eru, er það mál, sem ég álít, að þurfi að taka til athugunar, að allir kaupstaðir ættu það land, sem þeir standa á.
Það hefur oft komið í ljós, að þægilegast er fyrir bæjarfélögin að geta sjálf ráðstafað sínum lóðum. Alþ. hefur líka viðurkennt þetta og það nú síðast, þegar það veitti heimild til að selja Siglufjarðarkaupstað kirkjujörðina Hvanneyri.
Um jarðirnar í innfirðinum er það að segja, að þar er ekki farið fram á eignarnámsheimildina af þeim ástæðum, sem liggja til grundvallar málaleituninni um eignarnám á jörðinni Höfn, heldur vegna ræktunarþarfa bæjarins. Siglufjörður er mjög illa settur um öflun landbúnaðarafurða, sérstaklega mjólkur. Þar sem allir slíkir flutningar til bæjarins verða að fara fram á sjó, getur langvarandi gæftaleysi valdið því, að mjólk kemst þangað ekki vikum saman. Bænum er því mikil þörf á, að aukin sé mjólkurframleiðsla á bæjarlandinu sjálfu. Bærinn á að vísu kúabú með 40 kúm, en hann vantar tilfinnanlega land til ræktunar. Ýmsir einstaklingar, sem eiga kýr, þarfnast líka ræktunarlands. Í þessu sambandi þyrfti að vinna ýmiss konar skipulagsstarf, leggja vegi, hjálpa mönnum til að koma upp girðingum o.s.frv. En til þess er nauðsynlegt, að bærinn eigi sjálfur land það, sem um er að ræða, og geti skipt því niður eftir þörfum. Framfærslumálan. ríkisins hefur líka bent á það, að bæjarfélögin þyrftu að stuðla sem mest að möguleikum til ræktunar, er menn gætu horfið að, ef atvinnuleysi ber að höndum. Á Siglufirði er þetta sérstökum erfiðleikum háð af þeirri ástæðu, að þar er hábjargræðistíminn einmitt um það leyti, er helzt mundi unnið að ræktun. Eigi að síður mætti hér mikið gera til bóta, og það, hvernig Siglufirði er í sveit komið, er bærinn er fjöllum luktur og háður sjóleiðinni um alla aðflutninga, gerir nauðsynina á aukinni ræktun sérstaklega brýna. Bæjarstj. öll hefur því orðið sammála um að fara fram á þessa eignarnámsheimild.