17.12.1942
Neðri deild: 20. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 906 í B-deild Alþingistíðinda. (1420)

55. mál, eignarnámsheimild á Höfn í Siglufirði

Þóroddur Guðmundsson:

Hv. þm. Mýr. varaði við því að hlaupa eftir kröfum bæjarstj. um eignarnámsheimildir að órannsökuðu máli eða vaða inn á lönd einstaklinga og taka þau eignarnámi að nauðsynjalausu. Ég er honum alveg sammála um það, að gætilega verði að fara í slíkum efnum. En ég held, að um þessa kröfu bæjarstj. Siglufjarðar standi alveg sérstaklega á. Fyrsta jörðin, sem um ræðir í frv., er Höfn, og er bænum brýn nauðsyn á að eiga þá jörð vegna fyrirhugaðra hafnarbóta. Aðalskipalægi Siglufjarðar er innan við bæinn eða eyrina, sem bærinn stendur á, en þar er þörf víðtækra aðgerða. Höfnin er mjög grunn og jafnvel alltaf að grynnast, svo að brýn nauðsyn er, að hafizt verði handa um að dýpka hana. Verður bærinn vafalaust að leita til ríkissjóðs um aðstoð til þessara og annarra hafnarbóta. Það er nú augljóst, að bærinn getur ekki ráðizt í framkvæmdir, sem gera lönd einstaklinga, er að höfninni liggja, mörgum sinnum verðmætari en þau eru nú, án þess að hafa áður tryggt sér eignarrétt á þessum löndum, svo að hann verði ekki síðar meir að kaupa þau við okurverði, enda hlýtur ríkissjóður að krefjast þess, ef hann á að styrkja þessar framkvæmdir síðar meir. Hafnarland hlýtur að hækka mjög í verði eftir framkvæmd þeirra hafnarbóta, sem fyrirhugaðar eru, og ætti það að vera hv. Alþ. nægileg röksemd fyrir því, að sjálfsagt sé að samþ. frv. Og hér er engan veginn verið að vaða inn á annarra manna land, því að jarðir þær, sem um er að ræða, eru að mestu í eyði, svo að engir hafa af þeim neinar tekjur. Nyrðri-Skúta og Syðri-Skúta eru báðar í eyði og Neðri-Skúta hefur verið í eyði nú um langan tíma. Einu notin, sem eigendur hafa af þeim haft, eru þau, að löndin hafa verið leigð sem bithagar fyrir nokkra tugi króna á ári. Á Staðarhóli hefur verið hokrað um nokkur undanfarin ár, en nú er sú jörð líka í eyði. Eigendurnir hafa ekkert gagn að jörðinni, og vilji þeir halda í hana, þá er ástæðan einungis sú, að þeir vonast til að geta grætt á henni síðar meir. Ég mælist því eindregið til, að frv. verði látið ná fram að ganga. Og að því er snertir ræðu hv. þm. Mýr., þykir mér ástæða til að þakka honum þann skilning, sem hann sýndi málinu í raun og veru, þótt hann benti á nauðsyn þess að fara að öllu varlega.