02.12.1942
Efri deild: 7. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)
12. mál, orlof
Flm. (Guðmundur Í. Guðmundsson):
Herra for seti. — Í framhaldi af þeirri tilkynningu hæstv. forseta, að fundi verði frestað um tvöleytið, ef málinu verður þá ekki lokið, skal ég taka fram, að naumast er ástæða fyrir mig að fara mörgum orðum um þetta frv. Liggja til þess ýmsar ástæður. Vil ég þá fyrst geta þess, að þetta er í þriðja sinn á þessu ári, sem frv. þetta kemur til 1. umr. í þessari d. Fyrst var það flutt á þinginu í fyrra vetur og síðan á þinginu í sumar, og í bæði þessi skipti fóru fram nokkuð ýtarlegar umr. um frv. í heild. Umr. voru líka með þeim hætti á þinginu í sumar og fyrra vetur, að ekki er ástæða fyrir mig til að fara um það sérlega mörgum orðum nú, vegna þess að frv. var yfirleitt mjög vel tekið þá af öllum, sem tóku til máls. Þar að auki vil ég geta þess, að þetta frv. hefur verið sérlega vel undirbúið, áður en það var lagt fyrir þingið. Frv. var samið af mþn., sem skipuð var samkv. ályktunum frá Alþ., og áttu þar sæti fulltrúar bæði frá atvinnurekendum og verkalýðssamtökunum, og vann n. nokkuð lengi að frv. og undirbjó það ýtarlega. Auk þess mun frv. sniðið eftir mjög ýtarlegri löggjöf, sem samin hefur verið um þetta efni á öðrum Norðurlöndum.
Það, sem helzt þótti á skorta í sumar, var, að almenningur hafði ekki haft tækifæri til að átta sig á málinu og ræða það og frv. hafði ekki sérstaklega verið borið undir verkalýðsfélögin. Á þessu hefur nú verið ráðin nokkur bót. Síðan sumarþingið stóð, hafa farið fram alþingiskositingar, og í sambandi við þær var málið rætt mjög ýtarlega meðal almennings, og a.m.k. þrír þingflokkar lýstu yfir á stefnuskrá sinni fyrir kosningarnar, að þeir væru frv. fylgjandi. Þá vil ég einnig geta þess, að þing verklýðsfélaganna, sem haldið var hér í bæ fyrir nokkrum dögum, tók þetta mál til meðferðar og athugaði það sérstaklega, og að þeirri athugun lokinni lýsti alþýðusambandsþingið yfir, að það væri mjög fylgjandi þessu frv., og skoraði eindregið á Alþ. að samþ. það hið bráðasta. Málið er því þegar orðið það vel undirbúið, að það er vel kunnugt hv. þdm., að það virðist ekki sérstök ástæða fyrir mig til að ræða það mjög ýtarlega almennt við þessa umr. Ég skal aðeins benda á, að frv. í heild er byggt á þeirri staðreynd, að það er talin þjóðhagsleg nauðsyn, að öllu vinnandi fólki séu tryggð ákveðin lágmarksréttindi til orlofs á hverju ári. Þetta þykir ekki aðeins nauðsynlegt vegna þeirra einstaklinga, sem orlofið fá, heldur einnig vegna atvinnurekendanna og þjóðfélagsins að því er heilsuvernd snertir. Þess vegna gerir frv. ekki aðeins ráð fyrir, að vinnandi fólk hafi rétt til orlofs, heldur líka skyldu. Íslenzka ríkið og atvinnurekendur hafa einnig fyrir löngu viðurkennt þessa nauðsyn. Opinberar stofnanir hafa fyrir löngu komið á fót hjá sér skipulagi um orlof starfsmanna sinna og sömuleiðis einstakir atvinnurekendur, sérstaklega fyrir það fólk, sem stundar innivinnu, en verkalýðsfélögin hafa ekki getað komið þessu á fyrir sína félagsmenn þar til nú á síðustu tímum, að tekizt hafa samningar milli allmargra verkalýðsfélaga og atvinnurekenda um orlof verkafólks. Reglur þær, sem settar eru í þeim samningum, eru ákaflega misjafnar. Virðist það hafa ráðið mestu um, hversu heppilegum samningum verkalýðsfélögin hafa komizt að, hvort þau hafa verið nægilega félagslega sterk til að geta komið fram kröfum sínum. Á þessu er nauðsyn að ráða bót, og það er það, sem þessu frv. er ætlað að gera. Ég vil líka benda á, að Alþ. hefur í öðrum málum, sem einnig snerta verkalýðsfélögin, farið inn á sömu braut og gert er í þessu frv., þ.e. við ýmis atriði vinnulöggjafarinnar. Upp í þau l. hafa verið tekin ýmis ákvæði, sem mörg félög höfðu tryggt sér með samningum, og þótti rétt að taka þau upp í vinnulöggjöfina, til þess að koma samræmi á og tryggja verkalýðsfélögunum, sem veikari voru, sama rétt og þeim, sem sterkari voru.
Ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í einstök atriði frv. eða ræða það almennt. Frv. hefur þegar verið rætt mjög ýtarlega á tveimur þingum og í sambandi við síðustu alþingiskosningar, svo að hv. þm. er frv. kunnugt frá þeim umr., og ég hygg, að þá hafi komið fram allt, sem ástæða er að minnast á um frv. í heild.
Ég vil því leyfa mér að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. og allshn., en í þeirri n. mun frv. hafa verið í þau tvö skipti, sem það hefur legið fyrir þinginu.