18.01.1943
Efri deild: 35. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (1477)

12. mál, orlof

Ingvar Pálmason:

Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls í þessu máli. En það er nú komið svo, að þeir hv. þm., sem hafa andmælt brtt. hv. þm. Str., finna sjálfir, að þeir hafa veikan málstað. Nú koma þeir með boð um það, að þeir séu allir af vilja gerðir um það að taka til greina meginefni brtt. hv. þm. Str., en bara ekki í þessu frv. Ef nokkur alvara fylgir hjá þessum mönnum, vilja þeir þá bíða með þetta frv., þangað til þetta nýja frv. viðkomandi orlofum eða kynnisferðum sveitafólks er komið á sama stig í afgreiðslu eins og þetta frv. er komið nú? Svo lengi sem vilji þessara hv. þm. er ekki kominn þetta langt, hygg ég varasöm þessi velvilduryfirlýsingaorð hv. þm.

Mér þykir einkennilegt um mann eins og hv. þm. Barð., sem ekki er lögfræðingur og er töluvert kunnugur aðstöðu í sveitum, að hann skuli færa það fram sem ástæðu, að formið á þessu frv. leyfi ekki, að þessi brtt. hv. þm. Str. komist að. Því að í raun og veru lít ég svo á, að við, þessir óbreyttu þm., sem ekki erum lögfræðingar, græðum ekkert á því, að 25% hv. þm. eru nú lögfræðingar, það verð ég að segja eftir 25 ára reynslu á þingi, og vitna ég þá sérstaklega í þetta frv., þegar fara á að skjóta sér á bak við það, að form frv. þessa leyfi ekki, að brtt. hv. þm. Str. verði samþ. Mér virðist þar koma fram nokkuð líkt og þegar verið er að sækja mál fyrir dómstólunum. Ég furða mig á því og mér þykir það einkennilegt, að menn skuli skjóta sér á bak við þá tvíræðu ástæðu til þess að geta verið á móti brtt, hv. þm. Str., að hún falli ekkí inn í ramma frv., a.m.k. þegar þessi afstaða í málinu kemur fram hjá mönnum, sem telja sig vera fulltrúa fólksins, sem býr í kaupstöðunum. En það er kunnugt, að svo hefur verið ástatt hér á landi á undanförnum árum, að það hefur verið talin allmikil hætta á því, að víssir staðir á landinu gætu orðið fyrir loftárásum, og hefur verið gert mikið til þess að koma börnum burt úr bæjunum af þeim ástæðum yfir sumartímann. Og ég tel það lofsvert, að til þess hefur verið varið fé. Og börnunum hefur verið komið fyrir í sveitunum í öllum stofnunum, skólum og öðrum, þar sem hægt hefur verið að fá húsnæði. En meira en helmingi þeirra barna, sem vegna þessa hefur verið komið úr kaupstöðunum, hefur verið komið fyrir á sveitaheimilum, og ég hygg, að segja megi, að húsfreyjurnar hafi skilið þessa þörf fullkomlega og reynt að bæta úr þörfinni eftir því, sem þær hafa getað. Og allir þekkja, ekki síður við hv. þm. Barð. en aðrir, hvernig eru kringumstæður húsmæðranna í sveitunum. Þegar nú hæstv. Alþ. hefur til meðferðar mál, sem miðar að því að bæta kjör hins vinnandi fólks í kaupstöðunum og sjóþorpunum, þannig að það geti notið hvíldarstunda, og það má segja, að það sé eðlilegt og sanngjarnt mál, þá er það ekki nema mjög litill hluti þessa fólks, sem þarf þessarar löggjafar við. Allir, sem taka föst laun hjá því opinbera og einstaklingum, hafa fengið þennan rétt með samningum og þurfa ekki á þessari löggjöf að halda til þess, og það er aðeins lausafólkið, sem ekki hefur þennan rétt. Það er gott og blessað að tryggja því þennan rétt. Þegar svo er farið fram á að tryggja möguleika fyrir því, að húsmæður í sveitum geti átt kost á að fá einhverja frídaga — heimilisstörf þeirra leyfa þeim ekki, að þeir séu fleiri en 4 eða 5 — þegar farið er fram á það, þá er sagt: Það er gott og blessað mál, en það má bara ekki blanda því saman við þetta frv., sem fyrir liggur. — Er þetta ekki allt sama fólkið í sveitunum og kaupstöðum? Ef þessi viðbára er ekki skálkaskjól, þá er þetta eitthvað til að skjóta sér á bak við. Og þetta er ekki sá andi. sem á að ríkja á hæstv. Alþ. Og ég hygg, að mörg l. hafi verið afgr. á hæstv. Alþ., sem segja megi um, að nokkuð óskyld efni hafi komið fram í sömu l., og ef vilji hefur verið til að framkvæma þau, þá hefur það gengið vel. Og mér þykir það vera allt of mikið skilningsleysi á aðstöðu húsmæðranna í sveitunum, ef nokkur treystir sér til að vera á móti þessari brtt. hv. þm. Str. einungis vegna þess, að þeim finnst formið á frv. ekki leyfa það.

Að svo mæltu vil ég til samkomulags um að leysa þetta mál sæmilega lýsa yfir, að ég er fús til samstarfs við frsm. allshn. um að gera tilraun til þess að flytja annað frv. um einhverjar tryggingar fyrir því, að húsmæður gætu átt kost á að losna frá heimilisönnunum, þótt ekki væri nema 4–5 daga á ári, ef hann vill fyrir sitt leyti stöðva þetta frv. á meðan, þangað til hitt frv. er komið á sama stig um afgreiðslu. En ef hann vill þetta ekki, þá dreg ég í efa, að alvara sé hjá þessum mönnum eins mikil og látið hefur verið í veðri vaka. Og ég sé ekki, að það geti verið mjög mikil goðgá, þó að þetta frv. bíði þannig eitthvað, því að þegar allir hv. þm. eru af svo góðum vilja gerðir um þessi mál, þá má koma þessu í framkvæmd á 2–3 dögum. Töfin þyrfti því ekki að verða mikil.

Ég á erfitt með að trúa því, að brtt. hv. þm. Str. verði felld hér í hv. d., en samt setur að mér óhug út af afgreiðslu brtt. Og þrátt fyrir það, að ég áliti þetta frv. allrar góðrar meðferðar maklegt, þá greiði ég ekki atkv. með því, ef brtt. hv. þm. Str. verður felld. En ég álít, að ef hún verður felld, sé teflt á tvær hættur um samkomulag um þessi mál.