18.01.1943
Efri deild: 35. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 929 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

12. mál, orlof

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. — Þó að ég hafi aðeins talað einu sinni, skal ég vera stuttorður.

Það hefur nú komið fram ákaflega mikill velvilji gagnvart brtt. hv. þm. Str. En það er bara þetta, sem mönnum finnst, ýmsum, sem um hana hafa talað, að það sé ekki í lagi með formið á því að samþ. hana við frv. Þó er nú hv. þm. Str. lögfræðingur, en flestir þeir, sem að því formi hafa fundið, eða sumir a.m.k., eru ekki lögfræðingar. En hvað sem um það er að segja, finnst mér, að það muni vera tilvinnandi fyrir málið að draga um einn dag afgreiðslu þessa frv., ef hér er ekki ágreiningur um annað en formið. Ég vildi því stinga upp á því við hæstv. forseta og vona, að hann beri það undir hv. þd., að umr. um málið verði frestað í dag, en málið tekið fyrir á morgun, til að sjá, hvort þeir, sem aðallega hafa haft till. að gera í þessu máli, geta ekki orðið sammála eftir þann frest. Þar sem ég geri þessa till., ætla ég ekki að ræða frekar um málið nú, þó að nokkur atriði hafi komið hér fram, sem ég hefði haft ástæðu til að minnast á.