19.01.1943
Efri deild: 36. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (1492)
12. mál, orlof
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. — Það er vissulega einkennilegt að heyra úr ýmsum áttum, öllum áttum getur maður sagt, þessar velviljuðu yfirlýsingar um að sýna það, að hæstv. Alþ. vilji fyrir sitt leyti styðja að því, að sveitafólkið hafi einhvern orlofstíma frá bústörfum sínum. Þetta, sem hefur verið tekið fram af ýmsum hér, að brtt. hv. þm. Str. falli ekki að efni til inn í frv. — og ég álít rétt, að svo sé, — er þó hér gert að ástæðu fyrir því að neita því alveg að taka nú þegar tillit til sveitafólksins um orlof, en það finnst mér of langt gengið eftir atvikum, þegar sýnt hefur verið fram á, að hægt er að koma því svo fyrir í frv., að það ákvæði beri það sjálft með sér, að verið sé að gera skyndiráðstöfun, sem eigi að breyta og færa í annað horf, nefnilega með þeirri brtt., sem ég hef lagt fram á þskj. 231 um að ákveða þetta með bráðabirgðaákvæði, sem megi ekki standa lengur en þangað til sérstök l. verði sett um styrki til kynnisferða sveitafólks með ýtarlegri útfærslu, sem ég gat um í gær. Með þessu móti, að gera um þetta bráðabirgðaákvæði þannig lagað, finnst mér sanngjarnleg úrlausn fengin á málinu. Eftir eðli sínu er mikill skyldleiki með þessu, þó að annað sé orlof, en hitt kynnisferðir sveitafólks og styrkir til þeirra. Þetta er hvort tveggja til þess að hjálpa til þess að styðja fólk, sem yfirleitt neytir síns brauðs í sveita síns andlitis, til þess að fá einhverja frístund til að létta af sér áhyggjum og lyfta sér upp, hvort sem það er í sveit eða kaupstað.