05.02.1943
Neðri deild: 50. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 946 í B-deild Alþingistíðinda. (1516)
12. mál, orlof
Skúli Guðmundsson:
Ég flyt ásamt hv. þm. A.-Húnv. nokkrar brtt. við þetta frv., og eru þær á þskj. 330. En þó að þessar Brtt. okkar séu í 9 liðum, þá má segja, að hér sé aðeins lagt til að gera eina breyt. á frv. Breyt., sem við viljum gera á því, er sú að fella úr frv. ákvæðin um, að það skuli gefa út orlofsbækur og orlofsmerki og að orlofsfé skuli greitt með þessum merkjum. Hinar E brtt. eru bein afleiðing af þessari einu, og eru því allar breyt. um þetta efni. Till. okkar raska í engu aðalefni frv., þær raska á engan hátt því, að menn skuli fá orlof og orlofsfé greitt. Verði okkar till. samþ., verður orlofsféð greitt í peningum um leið og vinnulaunin, en ekki með þessum merkjum. Hér er því aðeins um fyrirkomulagsatriði að ræða. Þetta mundi gera alla framkvæmd auðveldari, en kemur þó að sömu notum fyrir þá, sem eiga að njóta þessara hlunninda, verkamennina. En þetta hefur þann kost, að það sparar fyrirhöfn og sparar ríkissjóði mikil útgjöld. Merkin og bækurnar hljóta að kosta mikið fé, og ég efast um, að allshn. hafi gert sér ljóst, hvað mikinn kostnað þetta muni hafa í för með sér, — ég gæti trúað, að það yrðu tugir, ef ekki hundruð þúsunda kr. Þeir menn, sem yrðu að fá þessar bækur, skipta sjálfsagt tugum þúsunda, og merkin hljóta að kosta allmikið fé. Við lítum svo á, að það sé óverjandi að eyða slíku fé að þarflausu. Það fé, sem eyðist á þennan hátt, kemur engum að gagni, hvorki verkamönnum né öðrum. Það er aðeins eitt, sem menn hafa reynt að færa því til stuðnings, að rétt sé að hafa það fyrirkomulag, sem frv. gerir ráð fyrir, sem sé það, að með því væri féð lagt til hliðar til notkunar síðar. En ég held, að það sé engin hætta á því, að verkamenn fari að eyða þessu fé öðruvísi en til er ætlazt, þó að þeir fengju það greitt með kaupi sínu. Ég er þess fullviss, að meiri hl. verkamanna er treystandi til þess að draga þetta fé saman og nota það sér til upplyftingar eins og til er ætlazt, hó að það sé ekki á þennan hátt tekið úr þeirra höndum. Ég veit að vísu, að til eru innan verkamannastéttarinnar eyðslusamir menn og ráðlitlir, eins og sjálfsagt í öllum stéttum. En ég vil bara benda á það að það er alls ekki meiri vissa fyrir því, að þeir menn noti féð á skynsamlegan hátt, þó að þeir fái það greitt einu sinni á ári heldur en þó að þeir fengju það greitt í fleiri pörtum. Slíkum mönnum, sem ekki kunna með fé að fara, verður ekki bjargað með ákvæði sem þessu. Við höfum heyrt raunalegar sögur um unga menn, sem hafa unnið sér inn stórfé síðan stríðið hófst, en eru svo miklir ráðleysingjar, að þeir eiga ekki einn eyri til eftir þetta uppgripatímabil, og þeim verður náttúrlega ekki bjargað, þó að orlofsfé yrði greitt með merkjum eða andvirði þeirra einu sinni á ári. Hugsum okkur einn slíkan mann, sem fer svona gálauslega með fjármuni sína og notar þá til þess að lækka sjálfan sig andlega og líkamlega. Hugsum okkur, að hann eftir að þetta yrði að l., eignaðist orlofsbók og fengi merki í hana, síðan ákveður hann að fara í orlof, fer með bókina á Pósthúsið og fær greitt andvirði merkjanna. Það segir sig sjálft, að slíkur maður gæti ekki farið í sumarfrí án þess að fá sér á nestispelann, þess vegna er það hans fyrsta verk hér á eftir að ná sér í vin, og hann þarf að rannsaka vínföngin, áður en hann fer í ferðalagið. Þetta endaði svo e.t.v. með því, að hann yrði „tekinn úr umferð“, sem svo er kallað, og eyddi orlofstímanum þannig á allt annan hátt en til er ætlazt. Þetta er ekki annað en það, sem við getum búizt við, þegar slíkir menn eiga í hlut, sem ekki kunna fótum sínum forráð í fjárhagsmálum eða öðru. Ég held, að þessum mönnum væri á engan hátt betur borgið, þó að þeir fengju orlofsféð greitt einu sinni á ári, heldur en þó að þeir fengju það í fleiri skömmtum. En þeir menn, sem eru ráðdeildarsamir, mundu vitanlega draga þetta fé saman og nota það sér til upplyftingar, eins og til er ætlazt með frv. Ég er viss um það, að ef menn athuguðu brtt. okkar hv. þm. A.-Húnv. hleypidómalaust, þá kæmust þeir að þeirri niðurstöðu, að það sé rétt að samþ. þær. Með þeim er á engan hátt skert aðalatriði frv. um orlof og orlofsfé, með þeim á aðeins að koma í veg fyrir það, að mikið fé fari í súginn algerlega að þarflausu. Ég hefði fyrir mitt leyti talið rækilegt, ef hv. allshn. hefði viljað taka þessa till. okkar til athugunar, að þessari umr. yrði frestað um einn dag eða svo, því að brtt. okkar var útbýtt nú á fundinum. Málinu ætti að vera jafntryggður framgangur fyrir því. Ég vil taka það fram, að þessi till. er ekki borin fram til þess að hindra eðlilega meðferð málsins á þinginu. Málið er komið það langt áleiðis, að það á að vera tryggt, að það geti gengið fram, ef þingvilji er fyrir því, — hins vegar álítum við nauðsynlegt að gera þessa lagfæringu á frv.