11.12.1942
Neðri deild: 14. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í B-deild Alþingistíðinda. (1524)

43. mál, búfjártryggingar

Flm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. — Frv. það, sem hér liggur fyrir, er í raun og veru ekki nema að nokkru leyti nýmæli, vegna þess að til eru l. frá 1928 um búfjártryggingar og hafa þannig verið í gildi í 14 ár, en hafa ekki komið enn til framkvæmda. Sýnist því fullreynt, að l. í þeirri mynd, sem þingið gekk frá þeim, kemur ekki að notum. En þar sem við flm. lítum svo á, að hér sé um merkilegt nauðsynjamál að ræða, höfum við talið rétt að gera tilraun til að skipa málunum nokkuð á annan veg, ef verða mætti, að það hlyti frekar en áður hylli almennings, svo að menn vildu nota sér þau ákvæði og koma á búfjártryggingum. L. frá 1928 mæla svo fyrir, að í hverjum hreppi væri búendum heimilt að samþ. að stofna búfjártryggingarsjóð. En það var með það eins og önnur samþykktarlög, að það skilyrði var sett, að ákveðinn meiri hl. þyrfti að samþ. að koma á slíkum sjóði ásamt ýmsum fleiri skilyrðum. En reynslan hefur þarna orðið svipuð og t.d. með brunabótatryggingu sveitabæja, sem voru í gildi í nærri því 20 ár, og á þeim tíma hafði aðeins örlítið brot af hreppum landsins notað sér þau. Þessi l. hafa steytt á sama skerinu, að ekki hefur orðið samkomulag í hreppunum um að koma þessari skipan á. Ekki hefur skort áhuga einstakra manna, en það nægir ekki, þar sem ákveðinn meiri hl. búenda þarf.

Af þessum ástæðum er það, að við flm. leggjum til, að hér sé breytt um að nokkru, og við leggjum fyrst og fremst til, að skylt sé að tryggja kynbótabú, sem starfa með styrk frá því opinbera og eiga að vera, ef svo mætti segja, til hagsbóta fyrir bændur almennt. Í öðru lagi séu tryggðir gripir, sem hlotið hafa viðurkenningu. Það, að við viljum koma á skyldutryggingu á þessum tveimur flokkum búfjár, er af því, að við teljum, að þessir gripir séu verðmætari en annað búfé, og auk þess leggjum við þetta til með það fyrir augum, að þar með sé fenginn stofn, sem eigi sinn þátt í því, að þessi tryggingarstofnun kemst á fót. Að öðru leyti leggjum við til, að þessar tryggingar verði frjálsar.

Við höfum sniðið þetta frv. að því leyti eftir gömlu l., að ekki er gert ráð fyrir, að sauðfé og hross séu yfirleitt tryggð, því að við lítum svo á, að meðan fjárpestirnar geisa og ekki hefur verið gengið betur frá fóðurtryggingunum en gert hefur verið enn, sé það ekki tímabært. Hins vegar höfum við bætt við nýjum lið, sem er ekki í gömlu l. Það er slysatrygging. Það kemur fyrir hér um bil á hverju ári, að menn frétta um fjárskaða. Það er alls ekki dæmalaust og hefur meira að segja oft komið fyrir, að bændur hafi misst svo að segja allt fé sitt á einni nóttu. Þeir, sem þekkja þetta, vita, að þetta tjón getur verið engu minna en þótt bærinn brynni, en getur oft verið meira. Löggjafinn hefur litið svo á, að brunatjón væri svo alvarlegt, að honum bæri að taka það mál í sínar hendur, og hefur því fyrirskipað skyldutryggingu gegn bruna á öllum íbúðarhúsum. En tryggingu búfjár gegn slysum hefur ekki verið hægt að fá, þó að menn hefðu viljað. Það er því að nokkru vegna samræmis í þessum efnum, að við töldum rétt að gera þessa tilraun og heimila mönnum að tryggja fé sitt gegn slysum, hvort sem það er vegna ofviðra, eða það flæðir í sjó eða annað þess háttar.

Í gömlu l. er gert ráð fyrir, að ríkissjóður leggi fram til búfjártrygginga 300 þús. kr. sem nokkurs konar stofnfé. En þótt l. hafi mælt þannig fyrir, hefur þetta aldrei verið nema á pappírnum, af því að með lagasetningu frá 1932 var svo ákveðið, að þessi þáttur l. kæmi ekki til framkvæmda, og er því þessi sjóður enn ekki til nema á pappírnum. Nú leggjum við til, að ríkissjóður greiði þessa upphæð til búfjártryggingardeildarinnar, eins og ákveðið var í upphafi, og sé það fé baktrygging búfjártryggingadeildarinnar.

Loks leggjum við til, að Brunabótafélag Íslands hafi á hendi framkvæmdastjórn þessara trygginga. Brunabótafélagið er nátengt landbúnaðinum og sér um tryggingar hans og er að nokkru leyti ríkisstofnun. Það á því að geta tekið að sér þessa grein með tiltölulega mjög litlum aukakostnaði. Það hefur sína starfsmenn, sem geta starfað að þessu, og mun það því ekki valda félaginu teljandi útgjöldum, þó að þessari deild sé bætt við, og hefur það sína þýðingu, ekki sízt, meðan deildin er að koma fyrir sig fótunum.

Ég hef þá í stuttu máli reynt að gera grein fyrir þeirri hugsun, sem er á bak við þetta. Ég vænti, að d. taki málinu vel, og óska, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og landbn.