15.01.1943
Neðri deild: 33. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 951 í B-deild Alþingistíðinda. (1529)

43. mál, búfjártryggingar

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. — Mig langar til að fá upplýsingar um nokkur atriði frá im. n. Í frv. er gert ráð fyrir, að tryggja skuli kynbótanaut og kynbótahesta, er njóta styrkja af opinberu fé og eru til félagslegra afnota. Nú njóta naut og hestar, sem hafa fengið I. og II. verðlaun, styrks af opinberu fé, en ekki þau, sem ekki hafa fengið III. verðlaun. Nú geta naut ekki fengið I. eða II. verðlaun yngri en tveggja ára, og hestar ekki yngri en þriggja. Er það þá ætlunin, að þau verði ótryggð fram að þeim tíma? Og á fjöldinn, sem hefur ekki fengið nema III. verðlaun eða alls engin, að vera ótryggður?

Þá er tekið fram í frv., að ekki megi tryggja eldri naut en 12 vetra, ekki eldri hesta en 18 vetra og ekki eldri hrúta og ær en 6 vetra. Á hverju er það byggt, að ekki má tryggja eldri dýr? Nú er það vitað, að góðir kynbátagripir eru oft látnir verða mun eldri en hér segir, — og því þá ekki að tryggja þá allan þeirra aldur?

Þá langar mig til þess að fá að vita, hvernig þeir hugsa sér, aia5 baendum verði veittar bætur fyrir skepnur, sem deyja af slysum. Erlendis er það ekki siður að veita slíkar bætur, nema fyrir liggi vottorð frá dýralækni um dauðamein dýrsins. Í strjálbýll okkar er hins vegar ómögulegt að ná alltaf í slík vottorð, og hafa tilraunir til að koma á búfjártryggingum áður strandað á þessu. Ég vildi því vita, hvernig n. hefur hugsað sér að hafa þetta, því að dauðamein geta verið ærið margs konar, og í tryggingarfélögum erlendis eru bætur ekki veittar, ef rekja má dauðameinið að einhverju leyti til meðferðar manna á dýrinu. Þetta langar mig einnig til að heyra um og þá líka, hvernig þeir hugsa sér að bæta vanhöld af slysum, og hvað þeir hugsa sér að telja þar undir og hvað ekki, en það er ákaflega teygjanlegt. Það væri annars ákaflega æskilegt, að hægt væri að finna heppilegt form fyrir starfrækslu búfjártrygginga hér á landi, og ég vona, að þetta frv. sé spor í rétta átt. Erfiðasta vandamálið er þetta með vanhöldin, vegna þess hve torvelt er oft að fá vottorð um dauðameinin.

Ég vildi svo að lokum spyrja hv. n., hvernig hún hefur hugsað sér að hafa tengslin milli tryggingardeildarinnar og þeirra fáu tryggingarfélaga, sem nú starfa og eru hreppafélög, eins og t.d. félagið í Kelduhverfi, sem er elzt þessara félaga, eða stofnað 1891 og starfar enn. Í Vestmannaeyjum er einnig félag, sem hefur starfað alllengi og auk þess ýmis önnur. Nú er spurningin, hvernig þessi félög eiga að falla inn í tryggingardeildina og hvort ekki þurfi að mynda sérstakan tengilið, sem þessi félög gætu fallið inn í, eða jafnvel hvort ekki ætti að skylda þau til þess að ganga inn í tryggingardeildina.