16.02.1943
Neðri deild: 59. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)
75. mál, lögsagnarumdæmi Neskaupstaðar
Frsm. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt samkv. tilmælum bæjarstjórnar Neskaupstaðar og fer fram á, að sá hluti jarðarinnar Ormsstaða í Norðfjarðarhreppi, sem nú þegar er orðinn eign bæjarsjóðs Neskaupstaðar, verði lagður undir lögsagnarumdæmi Neskaupstaðar frá 1. jan. 1943. Neskaupstaður keypti hluta þessarar jarðar fyrir nokkrum árum. Nú fyrir skemmstu hefur þessum hluta verið skipt úr, þannig að það eru orðin ákveðin landamerki milli þess hluta, sem Neskaupstaður á af jörðinni, og hins, sem enn þá er í eigu einstakra manna í Norðfjarðarhreppi. Þótti þess vegna rétt, að sá hluti, sem þannig er skipt úr og er eign Neskaupstaðar, verði lögsagnarumdæmi kaupstaðarins.
Það er fullt samkomulag um þetta mál bæði milli þess hrepps, sem þarna á hlut að máli, Norðfjarðarhrepps, og Neskaupstaðar, og í hv. Ed. var fullt samkomulag milli þingflokkanna um afgreiðslu þess. Allshn. þessarar d. hefur einróma komið sér saman um að mæla með því, að frv. verði samþ. óbreytt.