04.02.1943
Efri deild: 47. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

131. mál, útsvarsinnheimta 1943

Flm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt eftir samhljóða áskorun bæjarráðs Rvíkur, og er ýtarlega skýrt í grg., hvað fyrir bæjarráði vakir með því að óska þessarar heimildar — fyrst og fremst handa Rvík, en eðli lega einnig handa öllum sveitarstj. Það hefur um langa hríð reynzt óheppilegt fyrir sveitarsjóði og raunar einnig fyrir alla aðra aðila, hvernig innheimtu útsvara er háttað, sveitarsjóðirnir fá sáralítið af tekjum sínum fyrr en seinni hluta árs og aðallega haustmánuðina og fyrri hluta vetrar. Á venjulegum tímum mátti segja, að þetta gerði ekki mikið til. En þegar gjöld fóru stórhækkandi, urðu því meiri vandkvæðin í þessu efni. Á síðasta ári voru útsvörin í Rvík 10–11 millj. kr. á fjárhagsáætlun, en nú um 20 millj., sem nær eingöngu stafar af verðbólgu þeirri, er nú á sér stað í landinu.

Af þessu er það ljóst, að af tekjum síðasta árs er ekki hægt að inna af hendi öll þau gjöld, er til greina koma á fyrri hluta þessa árs, heldur verður þar að byggja á eldri sjóðum, og hlýtur bærinn því að verða í fjárhagserfiðleikum fyrri hluta árs. Það er að mörgu leyti óhægra fyrir bæinn að þurfa að taka lán til þeirra útgjalda, er hann nauðsynlega þarf að borga, auk þess hefði það í för með sér aukinn og óþarfan tilkostnað. Þetta gildir eins um önnur sveitarfélög, nema kannske hvað aðstæður þeirra sumra eru enn erfiðari.

Það er því augljóst mál, að brýna nauðsyn ber til að bæta úr því ástandi, sem nú er, og veita bæjar- og sveitarfélögum heimild þá til úrbóta í þessu efni, sem í frv. felst. Þessu ættu og gjaldendur hinna einstöku bæjar- og sveitarfélaga sízt að hafa nokkuð á móti, því að með þessu vinnst og það, að innheimta gjaldanna skiptist niður á fleiri mánuði. Nú er það svo, að í nokkra mánuði losna gjaldendur við greiðslu opinberra gjalda, en á þeim tíma sem öðrum safnast þeim fé, sem þá e.t.v. er eytt eða það bundið einhvers staðar, svo að lítið verður fyrir hendi oft á tíðum, þegar að skuldadögunum kemur, og því örðugra um borgun.

Raunar má segja það, að harkalegt megi virðast að innheimta gjöld, sem ekki er búið að leggja á, en í raun og veru er síður en svo hægt að segja, að slíkri aðferð sé hér til að dreifa, því að með lögunum eru gjöldin einmitt lögð á þegar í stað, en með þeim fyrirvara, sem í frv. segir. En það, sem mestu skiptir í þessu sambandi, er, hvort hér sé verið að þyngja álögur á gjaldendum eða ekki. En það hlýtur að vera öllum hv. þdm. ljóst, að með þessu frv. eru álögur gjaldenda á engan hátt þyngdar, heldur er aðeins um að ræða að dreifa útsvarinu á fleiri mánuði, til mikils hægðarauka bæði fyrir bæjar- og sveitarfélögin og einstaka gjaldendur, eins og nú standa sakir. Það er deginum ljósara, að útsvör verða mun hærri í ár en síðastliðið ár, þó að einstaka undantekning kunni að verða vegna veikinda eða annarra vandræða, en í frv. þessu er aðeins farið fram á að innheimta helming af útsvari s.l. árs og að við innheimtuna sé gætt hinna einstöku tilfella, séu þau fyrir hendi, eins og ég gat um.

Aðalannmarkinn við þetta frv., ef að l. verður, verða örðugleikar fyrir sveitarfélögin að taka þessa innheimtu að sér, þar sem þetta er að miklu leyti óundirbúið hjá þeim að hefja þessa innheimtu strax, en þessa erfiðleika verður að yfirstíga.

Ég vil svo vænta þess, að d. afgr. frv. þetta svo fljótt sem verða má, eða fyrir 14. febr., ef þingi skyldi þá vera slitið, til þess að ekki þurfi að taka það upp að nýju. Vil ég leggja til, að málinu verði vísað til fjhn., og bið ég þá hv. n. að hraða málinu svo sem henni frekast er unnt.