24.02.1943
Neðri deild: 64. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í B-deild Alþingistíðinda. (1626)

131. mál, útsvarsinnheimta 1943

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. — Þegar boðað var til fundar í fjhn. til þess að afgreiða þetta frv., fékk ég ekki fundarboðið og mætti þess vegna ekki á þeim fundi. Málið var því afgreitt í n. af aðeins 4 nm., en ég skrifaði síðar undir nál. með fyrirvara. Vegna þess að ég var ekki á fundinum, gat ég ekki átt tal við meðnm. mína um þá breyt., sem ég vildi gera á frv., en hef nú flutt brtt. ásamt hv. 2 þm. S.–M. á þskj. 453. Ég tel, að það sé rétt að samþ. þetta frv., vegna þess að þess geti verið þörf fyrir einstök bæjar- og sveitarfélög að fá útsvörin eða hluta þeirra greitt með þessum hætti fyrr heldur en venjulega, þar sem gera má ráð fyrir, að ýmis bæjarfélög, sem hafa mikil útgjöld, yrðu að öðrum kosti e.t.v. í nokkrum vandræðum með veltufé. En brtt. okkar á þskj. 453 aðeins fyrirbyggir það, að þessar fyrirframgreiðslur geti komið óþægilega við einstaka gjaldendur, sem svo stendur á um, að tekjur þeirra hafa orðið minni á síðast liðnu ári heldur en þær voru árið 1941, sem útsvörin á siðasta ári voru miðuð við, og sem á að miða þessar fyrirframgreiðslur við. Eins og öllum er kunnugt, eru tekjur margra einstaklinga og félaga hér á landi mjög misjafnar frá ári til árs. Það getur því vel komið fyrir í ýmsum tilfellum, að gjaldendur, sem hafa haft háar tekjur 1941 og borguðu því hátt útsvar 1942, geti átt erfitt með að inna af höndum þessar greiðslur upp í útsvörin, eins og til er ætlazt í frv. Við leggjum því til með þessari brtt. ef tekjurýrnun hjá einhverjum gjaldendum hefur numið 30% eða þar yfir, þ.e. tekjur þeirra hafa verið þeim mun minni árið 1942 heldur en 1941, þá geti þeir krafizt hlutfallslegrar lækkunar á fyrirframgreiðslu upp í útsvarið. Þetta ákvæði yrði sjálfsagt aðeins notað í undantekningartilfellum, en raskar í engu aðalefni frv.

Ég hef átt tal við flm. frv., hv. 6. þm. Reykv. (BBen), um þetta, og virtist mér hann líta svo á, að það sé eðlilegt að samþ. þessa brtt. Sagði hann, að hann hefði ekkert við það að athuga. Vænti ég þess, að hv. d. geti á það fallizt.