24.02.1943
Efri deild: 62. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)
4. mál, áfengislög
Bernharð Stefánsson:
Hv. frsm. meiri hl, allshn. hélt því fram í sinni síðari ræðu, að tilgangur frv. væri að gefa þeim kaupstöðum, sem hefðu áfengisútsölu, sama rétt og öðrum kaupstöðum til að ákveða, hvort þeir vildu hafa útsölu. Ég held nú, að þetta sé vafasamt, og vil benda á 2. gr., sem gerir ráð fyrir, að það sé undir atvikum komið, hvort frv. kæmi til framkvæmda eða ekki, og skil ég því ekki, hvað liggur á slíkum aðgerðum nú.
Hv. þm. vék að því í fyrri ræðu sinni, sem rétt er, að áður hefðu allir kaupstaðir og kauptún haft rétt til að greiða atkv. um, hvort áfengisútsala skyldi leyfð hjá þeim. En hér er ólíku saman að jafna. Þá var brennivínsverzlun eingöngu verzlun einstakra manna, og atkvgr. var um það, hvort Pétur og Páll skyldu fá leyfi til að selja áfengi, en nú er það ríkið, sem rekur verzlunina.
Hv. frsm. hélt því fram, að þetta mál væri lýðræðismál, en ekki bannmál. Ég færði nokkur rök að því í fyrri ræðu minni, að ekki væri um lýðræðismál að ræða, og ég lít reyndar ekki heldur á það sem bannmál, heldur einbert hégómamál, og mér finnst ekki, að Alþ. eigi að samþ. slíkan hégóma.
Hv. frsm. var að tala um, að ég teldi mig eiga að ráða því, hvort útsala skyldi leyfð t.d. á Seyðisfirði eða ekki. Það er langt sótt að túlka orð mín svo. Ég sagði, ef héraðabönn ættu að vera á annað borð, kæmi það fleiri mönnum við en íbúum viðkomandi kaupstaðar einum, nefnilega líka mönnum, sem verzluðu í þeim kaupstað. Ég tók til menn á fjörðunum í kringum Seyðisfjörð og uppi á Héraði, að þeim kæmi þetta eins mikið við og Seyðfirðingum sjálfum. Ef þetta ætti að vera lýðræðismál, mætti ekki minna vera en að áskilin væri atkvgr. á hverju verzlunarsvæði, þ.e. í kaupstaðnum og nærliggjandi sveitum.
Þá er annað. Samkv. 1. gr. nægir, að meiri hluti greiddra atkv. samþ. annaðhvort, en engin takmörk eru um það, hvað margir þurfa að taka þátt í atkvgr. Ef slík atkvgr. færi fram, gæti það vel hugsazt, að ekki væri í héraðinu nein þannig löguð starfsemi, sem hálfdrægi fólk til atkvgr. Stjórnmálaflokkarnir hafa reynslu í því, hvernig er stundum að koma fólki á kjörstað. Það gæti vel verið, að fjórði hluti kjósenda, helzt templarar, greiddu atkv., en hinir kæmu ekki. Svo ætti meiri hl. þeirra að ráða. Ef á að gera úr þessu mikið lýðræðismál, ætti að vera áskilið, að þetta væri samþ. af meiri hl. kjósenda, en ekki bara meiri hl. atkv.
Það virðist vera uppi óskir um að fá um þetta mál betri upplýsingar, og ég get vel tekið undir þær. Ég sé ekki betur en Áfengisverzlun ríkisins mundi hafa sama rétt áfram til að selja áfengi í heildsölu á sömu stöðum og nú er gert, og þá er mér óskiljanlegt, hvað fylgismenn málsins sjá með því unnið.
Röksemdir frsm. meiri hl. voru svo barnalegar, að engu tali tekur. Hann lauk fyrri ræðu sinni með því að segja, að tilgangur frv. væri sá, að allir landsmenn hefðu sama rétt. Nú gæti staðið svo á, að meiri hl. þeirra, sem fengjust til að greiða atkv., vildu hafa útsölu, en fjölmennir hópar í kringum viðkomandi kaupstað vildu það ekki. Er það sami réttur? Feður og mæður í nærliggjandi sveitum gætu alveg eins misst börn sín út í óreglu og kaupstaðarbúar í þeim kaupstað, þar sem útsala er, en þau fá engan atkvæðisrétt samkv. frv.
Hv. frsm. sór fyrir það, að verið væri að kaupa sér frið með þessu frv. Ég get ekkert um það sannað, en ég er víss um, að hér er ekkert annað á ferðinni en að vita, hvort templarar fáist nú ekki til þess að láta Alþ. í friði í eitt eða tvö ár, ef þeir fá þessa snuðtúttu. Ég hef kannske aldrei verið velviljaður templurum, og það má reikna það til illvilja líka að vilja ekki láta þá fá þessa. snuðtúttu, en mér finnst í einlægni sagt, að bannmálstaðurinn í landinu hafi litið gagn af slíku sem þessu. Það er áreiðanlega bezt að taka upp baráttuna um bann eða ekki bann grímulaust.