24.02.1943
Efri deild: 62. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (1695)
4. mál, áfengislög
Frsm. minni hl. (Bjarni Benediktsson):
Það hefur nú verið sýnt svo vel fram á, að hér er ekki um lýðræðismál að ræða, að ég þarf litlu viðað bæta. Þó vil ég segja það, ef ætlunin væri að koma á fullkomnu lýðræði, þá væri síður ástæða til að setja inn heimild fyrir kaupstaði og verzlunarstaði til að krefjast þess, að áfengisútsala væri sett upp hjá þeim, en ekki láta stj. ráða því. Ef lýðræðishugsjónin hefði verið efst á baugi, þurfti jafnhliða að setja inn rétt fyrir öll héruð til að greiða atkv. á báða vegu, en ekki bara í bannáttina. Þetta sýnir til fulls og endanlega, að ekki er um lýðræðismál að ræða, heldur tilraun til að koma á banni.
Það er til lofs fyrir dómgreind hv. frsm., að hann vildi ekki standa með frv., ef það væri bannfrv., og var hann því að reyna að afsanna það. Ummælin í fyrri ræðu hans voru í samræmi við það, sem áður hafði komið fram hér í d., því að hv. þm. Barð. hafði beint fyrirspurn til meiri hl. n. um það, hvort heildsala á áfengi yrði bönnuð. Hv. frsm. fullyrti þá hiklaust, að heildsalan yrði leyfð, og sama sagði hv. þm. Str. Hv. þm. Barð. hefur beint þeirri fyrirspurn til meir í hl. n., hvort heildsala á áfengi væri bönnuð samkv. þessu frv. Þá sagði hv. frsm. meiri hf., að heildsala myndi verða leyfð eftir sem áður. Hið sama sagði hv. þm. Str., en hann er sá maður, sem allra manna lengst hefur haft yfirstjórn þessara mála með höndum. En hins vegar varð það svo — og það sýnir samvizkusemi hv. frsm. meiri hl. —, að hann varð að játa, þegar hann fór að svara fyrirspurn um þessa sölu og hvernig henni er varið, að um hana eru engar reglur settar. Og þá komst hv. frsm. meiri hl. líka að þeirri niðurstöðu, og gagnstætt því sem hann hefur áður haldið fram, að hér væri um endanlegt bann að ræða, ef allir kaupstaðir landsins bönnuðu sölu áfengis innan sinna takmarka. En það brýtur í bág við fyrri fullyrðingar hans sjálfs, hv. þm. Str. og flutningsmanna frv. Hann dró sem sagt, rétta ályktun af frv. En ef þessi staðhæfing reynist ekki rétt vera — en ég vil halda því fram, að hún sé rétt og þá sé flutningur frv. fráleitur —, en hinsvegar reynist rétt, að heildsala áfengis megi eiga sér stað eftir sem áður, þá er það, sem skeður við samþ. þessa frv., það, að heilbrigðar reglur um afhendingu áfengis í símasölu eru numdar úr gildi, en heildsala leyfist, hvar sem er, reglulaust. Það er því opnað fyrir meira flóð áfengis en nokkru sinni áður hefur átt sér stað. Ég verð að segja, eins og hv. frsm. meiri hl., að málið hefur fengið nákvæma athugun í n. Þeir gallar, sem á því eru, liggja ekki í neinu, sem hægt er að laga með athugun. Þeir liggja í eðli sjálfs frv. Það leiðir til ills, það er óljóst, það þorir enginn þm. að vera með því eða á móti. Þess vegna er settur inn í frv. fyrirvari um að skella allri ábyrgðinni á hv. ríkisstj. Ég vil segja það, að ég þarf ekki að íhuga frv. frekar til þess að sjá, að slíkt frv. er ekki hægt að samþ. Það væri til skammar fyrir hv. deild og hv. Alþ. Eins og hv. þm. Barð. sagði, gæti komið til mála að ræða, hvort banna ætti alla sölu áfengis eða ekki, hvort grípa ætti til strangra aðgerða. Um það er þá hægt að ræða, þegar þar að kemur. En við skulum ekki vera að tefja tíma Alþ. með öðru eins frv. og þessu, sem aðeins gæti leitt til rauna, ef það yrði samþ.