18.11.1942
Sameinað þing: 1. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. meiri hl. 1. kjördeildar (Haraldur Guðmundsson):

Ég skal ekki blanda mér í orðaskipti þeirra hv. þm. S.-Þ. og hv. þm. G.-K., en snúa mér að till. hv. þm. V.-Húnv. að fresta að taka gilda kosningu Gunnars Thoroddsens í Snæfellsnessýslu. Hv. þm. ber fram þessa till., að mér skilst, af því tilefni, að honum hefur borizt yfirlýsing frá nafngreindum manni um stórvægilegar misfellur á kosningunum þar í héraðinu. Ég tel rétt að taka fram, að sjálf kosningaúrslitin í héraðinu hafa ekki verið vefengd, að minnsta kosti hefur engin kæra komið fram um það. Yfirkjörstj. hefur fallizt á hana, og kjörbréfið er gefið út án ágreinings. Það er því ljóst, að till. um að fresta því að taka kosninguna gilda byggist einungis á þessari yfirlýsingu, enda kom það fram í ræðu hv. þm. V.-Húnv. Ég játa, að þarna eru bornar fram þungar sakir, og er enginn vafi á því, að hv. Alþ. ber skylda til að líta eftir, að ekki sé beitt ólöglegum áróðursaðferðum við kosningar. En mér finnst ekki heldur mega gleyma því, að þeim, sem vefengja kosningar, ber jafnframt skylda til að afla fullnægjandi gagna í málinu og leggja fyrir Alþ.

Í 140. gr. kosningal. segir, að kjósandi, sem vill kæra um kosningu til Alþ., skuli innan 4 vikna, frá því að kosningaúrslit voru auglýst, en þó áður en næsta Alþ. kemur saman, senda dómsmálaráðuneytinu kæru í tveim samritum. Dómsmálaráðuneytið skal því næst senda annað samritið frambjóðandanum eða umboðsmönnum framboðslistans, en hitt samritið skal lagt fyrir Alþ. þegar í þingbyrjun. Hér er auðsjáanlega til þess ætlazt, að málið liggi sæmilega ljóst fyrir, þegar það kemur fyrir þingið.

Ég geri ráð fyrir, að hv. Framsfl. telji ástæðu að leggja trúnað á verulegan hluta af sakargiftum þeim, sem fram koma í fyrr nefndri yfirlýsingu, því að annars mundi hann tæpast hafa lagt til, að frestað yrði að taka kosninguna gilda. En ef svo er, furðar mig á því, að hann skuli ekki hafa búið málið í hendur þinginu á þann hátt sem kosningal. heimta. Án þess að ég treysti mér til að vefengja þessar ásakanir, verð ég að telja þær veikan grundvöll fyrir Alþ. að byggja á samþ. um frestun þess að taka kosninguna gilda. Ef slík frestun á að hafa gildi, verður að fresta málinu svo lengi, að full rannsókn geti farið fram. Ég tel líklegt, að slíkt gæti tekið viku, ef til vill mánuð. Af því gæti leitt það, að hlutaðeigandi hv. þm. yrði haldið utan þings allan þennan tíma og ef til vill allt þingið. Ef ekki þyrfti annað en slíkar sakargiftir sem þær, er um getur í áður nefndri yfirlýsingu, til þess að Alþ. frestaði að taka kosningu gilda, þá gæti það orðið til þess að útiloka einstaka þm. frá þingstörfum svo eða svo langan tíma. Og ég veit ekki til, að Alþ. hafi nokkurn tíma frestað að taka kosningu gilda, án þess að fyrir lægi formleg kæra. Meiri hl. kjördeildarinnar getur því ekki fallizt á frestunartill., eins og málið er í pottinn búið. Hins vegar teljum við þessar ásakanir svo veigamiklar, að skylt sé að láta rannsókn fara fram. Ég get auðvitað ekkert um það sagt, hvort þessar ásakanir séu sannar eða ekki. En við leggjum til, að kjörbréfan. fái málið til rannsóknar.

Hér hefur einnig verið minnzt á önnur atriði, síldarmjölsgjafir og slíkt, sem ég tel, að líka þurfi rannsóknar við. Það er eins og ég áðan sagði, beinlínis brýn skylda Alþingis að líta eftir því, að ekki séu brotin ákvæði kosningalaganna í þessu efni. Það er því ætlun kjördeildarinnar, að þessi rannsókn fari fram, og það með hinni fyllstu röggsemi. Það er skylt, vegna þeirra, sem undir ámælinu liggja, og eins vegna hinna.

Enn fremur vil ég taka fram, ef svo skyldi fara, að þessar sakargiftir sönnuðust, og þm. kjördæmisins væri við þær riðinn, þá liggur í hlutarins eðli, að hann missir kjörgengi og víkur af þingi, og það án tillits til þess, hvort kjörbréf hans er tekið gilt nú eða ekki.

Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð, en vil aðeins bæta við, að samkv. 4. gr. þingskapa verður ljóst það, sem ég sagði, að kjörbréfanefnd ætlast til, að það sé hægt að vísa til hennar ekki aðeins kosningakærum, sem ekki eru afgreiddar, og öðru slíku, heldur einnig kærum yfir kosningu og kjörgengi, sem þegar hefur verið tekið gilt.