24.02.1943
Neðri deild: 64. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

33. mál, greiðsla íslenzkra afurða

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Ég hef ekki margt um þetta frv. að segja. Allshn. hefur litið á málið og telur, að það sé í höfuðatriðum þarflegt, eins og þessum málum er nú komið í framkvæmdinni. Einn hv. þm. hefur nú bent mér á ákvæði í 2. gr., sem heppilegra muni vera að hafa nokkuð á annan veg. Ég hef talað um það við þann hv. þm., að hann frestaði að bera fram brtt. um það atriði til 3. umr. Ég hef fengið að sjá það, hvernig hann hugsar sér þessu atriði fyrir komið, og vildi ég milli umr. nota tækifærið til þess að bera mig saman við hv. meðnm. mína um þetta atriði. Vona ég nú, að málið fái að ganga hindrunarlaust til 3. umr.