30.11.1942
Neðri deild: 7. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1032 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Skúli Guðmundsson:

Það er aðallega eitt atriði í þessu frv., sem ég vildi víkja að nokkrum orðum. Þar er lagt til, að 3. gr. laga um Fiskveiðasjóð Íslands falli niður. Í þeirri gr. er heimild til þess að afla sjóðnum fjár með lántöku á þann hátt að gefa út bankavaxtabréf. Minnir mig, að heimild sé til allt að 4 millj. kr. lántöku á þennan hátt. Mér kemur það satt að segja einkennilega fyrir sjónir, að hv. flm. skuli vilja fella niður þessa lántökuheimild. Þessi sjóður átti helzt að fullnægja fjárþörf sjávarútvegsins, og virðist mér þá eðlilegt, að hann afli sér að einhverju leyti fjár með lántöku. Ég vil í því sambandi benda á, að hliðstæðar stofnanir fyrir landbúnaðinn afla sér fjár að nokkru leyti með sölu á bankavaxtabréfum, en að nokkru leyti leggur ríkið þeim til fé. Mér virðist eðlilegt, að sjóðnum sé lagt til fé frá ríkinu að einhverju leyti, en ég er því algerlega mótfallinn að fella niður þessa lántökuheimild.

Ég sé ekki ástæðu til þess að víkja að fleiri atriðum í sambandi við þetta frv. Ég vil aðeins benda á það, að útflutningsgjaldið er allverulegur liður í núv. fjár lögum, og fjvn. verður því að haga störfum sínum í samræmi við það, hverja afgreiðslu þetta mál fær.