12.01.1943
Neðri deild: 30. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1759)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Sigurður Kristjánsson):

Út af orðum hv. þm. N.-Þ. vil ég taka það fram, að það er næstum óeðlilega langur tími, sem í þetta mál fer. Ég held, að af því að liðnir eru 2 mán. síðan þing var sett, en þetta mál kom fram í byrjun þings, sé varla fært að fresta því, enda geta þm. komið með aths. við 3. umr.