13.01.1943
Neðri deild: 31. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Lúðvík Jósefsson:

Ég hef skrifað undir nál. meiri hl. sjútvn., en áskil mér rétt til að flytja brtt. við það, ef brtt. koma yfirleitt fram hér í hv. d. Ég er ekki alls kostar ánægður með frv., sérstaklega að því er eina breytinguna snertir, e n tel þó ekki að svo stöddu rétt að vera á móti því af þeirri ástæðu.

Frv. felur aðallega fjórar breytingar í sér. Fyrst er sú, að fiskveiðasjóður skuli fá 13/8% af útfluttum sjávarafurðum í stað 1/3%, eins og nú er. Allir nm. virðast sammála um þetta. Í öðru lagi er sú breyting, að útlánsvextir sjóðsins lækki úr 41/2% í 3%. Fjórir nm. voru sammála um, að þetta væri bæði æskilegt og mögulegt. Hv. þm. N.-Þ. hefur að vísu ekki lýst sig andvígan þessu, en telur hins vegar nauðsynlegt, að útlánsvextirnir verði ákveðnir með hliðsjón af vöxtum af landbúnaðarlánum. Þriðja breytingin er sú, að stofnuð verði sérstök deild í sambandi við fiskveiðasjóð, er hafi með höndum úthlutun styrkja til smíða á fiskibátum, og er sú breyting veigamest. Fjórða breytingin varðar reglurnar fyrir útborgun lána úr sjóðnum.

Afstaða mín til frv. er nú sú, að ég tel ekki æskilegt að fara lengra út á styrkjabrautina en gert hefur verið. Að vísu eru erfiðleikar sjávarútvegsins miklir vegna gífurlegs kostnaðar við skipasmíðar, en ég tel réttara að lyfta undir með útveginum með því að veita honum aukin starfslán, sem séu vaxtalaus, a.m.k. á fyrsta ári. Um þetta álit mitt gat ég í sjútvn., en n. þótti ekki tiltækilegt að gera breyt. í þá átt, ag ég bar því ekki fram brtt. um þetta, þar sem aðeins er um bráðabirgðaráðstöfun að ræða. Þessir styrkir samkv. frv. eru varla ætlaðir nema til eins árs. Ætlazt er til, að ríkissjóður leggi fram 2 millj. kr., en ekkert er tekið fram um það, hve mikið af því eigi að nota þegar í stað, og liggur næst að ætla, að allt eigi að nota þegar á þessu ári. Ég tel því ekki rétt að standa á móti fyrr nefndu framlagi í þetta eina skipti, en í framtíðinni teldi ég réttara að veita vaxtalaus lán.

Hv. þm. N.-Þ. minntist á umsagnir nokkurra málsmetandi aðila um frv. þetta, meðal annars umsögn farmannasambandsins, sem vill láta lána fé til skipa allt að 200 smál. að stærð og leggur til, að skipaðar verði n. til að athuga, hvaða stærðir og tegundir fiskiskipa séu hentugastar hér á landi og hvaða tegundir véla heppilegastar. Er full ástæða til að skipa mþn. til að athuga þessi og önnur atriði, sem hér koma til greina, eins og hv. þm. N.-Þ. benti á. En þó að skipun slíkrar n. sé í ráði, þykir mér það ekki réttlæta andstöðu við það, að veittur sé nú styrkur til eins árs til skipa innan við 150 smálesta stærð. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að sá ágreiningur, sem kom fram í sjútvn., snerti í rauninni aðeins tvö atriði, annars vegar vextina, hins vegar styrkina, en ágreiningur var enginn um efnishlið málsins. Og mitt sératkvæði er eingöngu viðvíkjandi styrkjunum, því að ég tel, að ef farið væri út á þessa styrkjabraut, þá mundi það koma í ljós í framtíðinni, að erfitt yrði að setja fullnægjandi skorður við því, að þeir yrðu misnotaðir.