15.01.1943
Neðri deild: 33. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (1774)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Ég skal ekki tefja afgreiðslu þessa máls með meiri ræðuhöldum og ekki svara hv. 2. þm. S.- M., en ég vil benda á, að hann sagði, að ef hv. þm. N.-Þ. hefði ekki annað gert en leggja til, að málinu væri vísað frá, hefði ég haft ástæðu til að láta orð falla um efa minn á, að till. um mþn. væri fram komin af þeirri funandi ást til sjávarútvegsins, sem flm. vildu vera láta. Í frv. á þskj. 165, um nýbyggingarsjóð fiskiskipa, er ekki minnzt á meginatriði frv., sem hér liggur fyrir. Hvar er minnzt á lækkun vaxta? Hvar, að 2 millj. kr. skuli taka frá til að efla smáútgerðina? Hv. 2. þm. S.-M. verður að lesa betur. Það er alveg í samræmi við þetta, þegar hann heldur því fram, að till., sem hér liggja fyrir, séu fálm út í loftið, en till. þeirra framsóknarmanna, sem eru hjal um allt og ekkert, séu svo afar veigamiklar.

Ég vil ekki tefja þetta mál, sem ég er víss um, að sjómenn í Suður-Múlasýslu eins og annars staðar á landinu fylgjast með og óska sæmilegs velfarnaðar.