09.02.1943
Efri deild: 51. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Ingvar Pálmason:

Það varð að samkomulagi við 2. umr. þessa máls, að ég tæki aftur brtt. á þskj. 327 til 3. umr. Byggðist þetta á því, að það virtist vera nokkur von um, að hægt væri að fá samkomulag um þessar brtt. Síðan hefur verið leitazt fyrir um það, hvernig málið stæði í þinginu, hvort til væri meiri hl. innan þingsins fyrir þeim breyt., sem eru á þskj. 327, og ég gerði allýtarlega tilraun til að rannsaka þetta. Og ég hygg, að formaður sjútvn. hafi líka gert nokkra tilraun til þess. Við þessa rannsókn kom í ljós, að það er fullvíst, að fyrir þessum breyt., sérstaklega breyt. á 6. gr. frv., er til staðar nægilegt fylgi til þess að þetta yrði samþ. En einhverjar ástæður valda því, að þetta fylgi fæst ekki fram, og get ég því til sönnunar skírskotað til ummæla hv. þm. Barð. (GJ), sem hefur hér í d. lýst yfir, að í raun og veru væri hann alveg sammála þessum brtt.; og svo mun vera um fleiri í þeim flokki. Hvað svo veldur því, að þessi vilji fær ekki að njóta sin, get ég ekki um dæmt og kæri mig ekki um að leggja neinn dóm á það. En ég vil segja, að það eru hér að verki einhver öfl, sem ég tel, að séu ekki sem heilbrigðust, þegar það er tilfellið, að hinn rétti og sanni þingvilji fær ekki að njóta sin. Ég er þó enn ekki alveg úrkula vonar um það, að brtt. mínar nái samþykki. Og því er það, að ég óska þess, að nú verði látin ganga atkv. um þær hér í hv. d. Ég tel þetta mjög illa farið, að vona þyrfti að takast til, ekki sízt vegna þess, að mér virðist, að undir þá skoðun mína, sem felst í brtt. mínum á þskj. 327, renni allsterkar stoðir. Og vil ég þar skírskota til umsagna þeirra, sem gefnar voru um þetta mál til hv. sjútvn. Nd., bæði frá stjórn fiskveiðasjóðs, frá stjórn Fiskifélagsins, frá fiskimálan. og frá stjórn Farmanna- og flskimannasambands Íslands, og ummæli allra þessara aðila hnigu í þá átt, að þeir séu andvígir þeirri stefnu, sem fram kemur í frv., en láta, a.m.k. sumir þeirra, fyllilega í ljós, að þeir mundu telja réttláta og vilja fylgja þeirri stefnu, sem kemur fram í brtt. mínum. Og það mun ekki ofmælt um hina aðra af þessum aðilum, að það virðist vera, að þeir mundu frekar fallast á þá stefnu.

Ég sé ekki við þessa umr. ástæðu til að fara út í rökstuðning fyrir þessum till. Ég þóttist gera það allrækilega við 2. umr. málsins, enda er það það merkilega, sem á sér stað hér í hv. d., að ég hef ekki orðið var við opinber andmæli gegn þessum brtt. Og það virðist sem sé vera, að ástæðurnar fyrir því, að þessar brtt. ná ekki fram að ganga, sé eitthvað, sem ekki hefur komið fram í þinginu. Ég veit vel ástæðu hv. þm. Barð., form. sjútvn., því að við erum búnir að ræða þetta mál svo, að ég þekki afstöðu hans og skil hana mjög vel. En raunalegt er, að svo skuli þurfa að fara.

Ég vil aðeins bæta því við, að ég hef fulla heimild fyrir því, að það komi fram, að Framsfl. muni allur standa óskiptur að þessum brtt., því að hann kannske standi ekki óskiptur að öllum atriðum frv. Og ég hygg, að ef þessar brtt. væru samþ., mundi hann ekki gera minnstu tilraun til að setja fót fyrir málið. Ég hef nokkra ástæðu til að ætla líka, að Sósfl. standi óskiptur að þessum brtt., þó að ég hafi ekki haft neina aðstöðu til að rannsal:a það, og ég byggi það á því, að í n. í Nd. munu hafa komið fram till. frá fulltrúum Sósfl. í sjútvn. Nd., einmitt sams konar till. og ég flyt hér, a.m.k. að því er snertir 6. gr.

Ég geri ráð fyrir, að því verði haldið fram sem aðalástæðu fyrir því að vera á móti þessum brtt., að þær stofni frv. í hættu, ef þær væru samþ., og ég skil það, að menn, sem er kappsmál, að frv. gangi fram, vilja ekki stofna því í hættu. En þessar breyt., þó samþ. verði, stofna frv. ekki í hættu í Nd., svo framarlega sem vilji a.m.k. tveggja þm., sem tilheyra Sjálfstfl., fær að njóta sín, — það er ég viss um. Í öðru lagi vil ég benda á að allar líkur eru til, að frv. fari héðan úr hv. d. breytt, þannig að sett verði hér í hv. d. í frv. breyt., sem olli ákaflega miklum deilum í hv. Nd. og ég, frá þeirri kynningu, sem ég hef haft af meðferð málsins í Nd., hef ástæðu til að halda, að verði lögð ákaflega mikil áherzla á, að tekin verði út aftur í Nd. Ég skal játa, að ég er einn af flytjendum þessarar brtt., brtt. n., sem n. flytur með sínu nál. Ég legg ekki nærri eins mikla áherzlu á þá brtt. eins og þá brtt., sem ég flyt á þskj. 327, og ég mundi tvímælalaust skipta á þeim ágreiningsefnum. Hins vegar tel ég og taldi í n. strax, að ef þau ákvæði frv., sem nú eru í því. að fiskveiðasjóður hefði engin afskipti af þessari nýju deild, sem stofna á með 2 millj. kr. framlagi úr ríkissjóði og 1/3 hluta af útflutningsgjaldinu, — ef fiskveiðasjóður ætti engin áhrif að hafa á það önnur en að taka á móti tekjunum og telja svo út peningana, þegar aðrir, honum alveg óviðkomandi aðilar, væru búnir að skipta þeim. Þá tel ég rétt, að úr því að þessi deild er stofnuð við fiskveiðasjóð, að hún sé svo mikið tengd sjóðnum, að stjórn fiskveiðasjóðs hafi með höndum úthlutun úr þessari sjóðsdeild. Þess vegna var ég meðflm. þeirrar brtt., en alls ekki af því, að ég áliti, að sú brtt. skipti aðalmáli í þessu máli eða sé meginatriði í því.

Ég hygg, eftir þeim fregnum, sem ég hef fengið, og það frá heimildum, sem ég hef enga ástæðu til að rengja, að litlar líkur séu til þess, að brtt. mínar verði samþ. í hv. d., en að allmiklar líkur séu til þess, að brtt. n. verði samþ. Af þessu leiðir samt sem áður óhjákvæmilega, að málið fer til hv. Nd. Og ég gæti búizt við því, ef brtt. n. verður samþ., að hún gæti valdið nokkrum umr. í hv. Nd. Það verður að skeika að sköpuðu, hvernig fer um brtt. minar. En ekki þætti mér alveg vonlaust, að þær yrðu teknar upp í hv. Nd., og ég get ekki sagt um, hvernig fer þá um málið. En þá segi ég, að ég ber enga ábyrgð á því, þótt fyrir þetta mál verði á einn eða annan hátt settur sá fótur, að það komist ekki úr þinginu nú. En hitt skal ég staðhæfa og stend við það, að í Nd. eru brtt. mínum tryggð 17 atkv. Og þá ber hv. þdm. hér að meta það, hvor hættan er meiri, að samþ. þessar brtt. nú og láta frv. fara til Nd. með þeirri einu breyt., sem n. leggur til, eða lagfæra frv. þannig að koma því í það horf, sem eðlilegt er og meiri hl. þingsins óskar.

Ég held, að til grundvallar hinni sennilega væntanlegu afgreiðslu þessa máls liggi vægast sagt misskilningur, og það er illa farið. Því að ég er sannfærður um það, eins og frv. er nú, ef það verður að l. óbreytt, sem nú er ætlazt til, þ.e. 6. gr. þess óbreytt, þá liður ekki langur tími þangað til gerð verður tilraun til að gera breyt. þar á og fleiri gr. laganna.

Ég veit ekki, hvort ég sit á næsta þingi, og ég gef engin fyrirheit um það. En ekki þætti mér ólíklegt, ef ég ætti að sitja á næsta þingi, að ég yrði meðflm. að brtt. á þeim lagaákvæðum, sem samþ. yrðu með þessu frv., ef samþ. verður í því formi, sem það er nú í, eða með breyt., sem n. fer fram á. Og segi ég þetta af því, að mér er þetta feikilega mikið alvörumál og ég er sannfærður um, að ég hef rétt fyrir mér. Ég vildi láta þetta koma fram hér í hv. d., áður en brtt. mínar fara undir atkv., og tel ég mig alls ekki gera neina vísvitandi tilraun til þess að stöðva málið. Og ég get lýst yfir, að hvernig svo sem fer um þetta mál, þá eru í frv. þau ákvæði, sem gera það að verkum, að ég get ekki, þrátt fyrir þá megingalla, sem á því eru, og mun ekki greiða atkv. á móti því út úr þín ginu. Hins vegar mun ég ekki greiða atkv. með því nema því aðeins, að ég sjái, að það velti á því, hvernig mitt atkv. er, hvort málið gengur fram eða ekki. Þá mun ég skoða hug minn um það, hvort ég greiði atkv. með því eða ekki.