09.02.1943
Efri deild: 51. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1068 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)
16. mál, fiskveiðasjóður Íslands
Brynjólfur Bjarnason:
Ég get verið samnála hv. 1. þm. S.-M. um það, að einkennilegt sé, ef meiri hl. er með þeirri breyt., sem hann berst fyrir, skuli sá meiri hl. ekki geta komið sér saman og afgr. frv. eins og hann virðist óska sameiginlega og teldi réttast. Ég er sammála þm. um það og hygg það vera afstöðu Sósfl., að heppilegast væri að komast hjá því að fara styrkja leiðina, en fara heldur þá leið, sem hann fer með brtt. á þskj. 327. Hins vegar getur Sósfl. ekki fallizt á till. hans eins og hún er fram borin. Fulltrúi flokksins í sjútvn. Nd. gerði tilraun til að breyta þessu í frv. í það horf, að stofnuð yrði sérstök deild við fiskveiðasjóð til að lána gegn 2. og 3. veðrétti, eins og lagt er til á þskj. 327, en til þess að sú leið sé fær, þarf miklu skýrari ákvæði. Að gagni kemur hún ekki, svo framarlega sem ákveðið er, að lánin séu með 4% vöxtum. Og auk þess er óhjákvæmilegt, að reglur séu settar í l. sjálfum að því, er snertir styrkveitingarnar eða lánveitingarnar, svo að 3. brtt. á þskj. 327 er alls ónóg.
Á hinn bóginn álítur Sósfl. hér vera svo mikið mál um að ræða, að rétt sé að samþ. það, þótt það fáist ekki fram í þeirri mynd, sem hann hefði kosið.
Það er ekki rétt, sem hv. 1. Þm. S.-M. sagði við fyrri umr., að hér væru engin ákvæði, sem jafngiltu 17. gr. jarðræktarl. Í frv. er einmitt slíkt ákvæði. Þar segir, að í reglugerð skuli sett ákvæði til tryggingar því, að styrkirnir verði ekki misnotaðir með því að verzla með þá eða á annan hátt. (IngP: Það orðalag nær of skammt). Það er hugsað þannig, að í reglugerð megi bæta um orðalagið, svo að dugi, svo að með engu móti verði „verzlað“ með styrkina. Ef reglugerðin kemur ekki í veg fyrir það, er hún ekki í samræmi við lögin. En þm. getur, þótt mér sýnist það ekki nauðsyn, komið með brtt. um strangara orðalag.
Þá kem ég að brtt. sjútvn., að styrkjum skuli úthlutað af stjórn fiskveiðasjóðs, þ.e.a.s. af framkvæmdastjórn Útvegsbankans. Ég tel alveg ófært, að þessi till. verði samþ. Ég tel það í alla staði óviðeigandi, að stjórn bankans sé látin úthluta þessu fé, þar sem hún hefur þarna mjög mikilla hagsmuna að gæta og hlýtur að vera geysileg freisting fyrir hana sem hverja aðra bankastjórn að gera það við úthlutunina. Nú er sagt, að hún sé ekkert hrifin af að fá þetta vald, því að henni er ljóst, hve örðugt muni að sleppa þar við tortryggni. Hv. 2. þm. S.-M. (EystJ) lýsti yfir því við umr. í Nd., þar sem þetta ákvæði var síðan fellt, að hann teldi samþykkt þess slíka fjarstæðu, að um langt skeið hefði engin önnur eins náð samþykki Alþingis. Ég er honum alveg sammála um það. Þess vegna trúi ég ekki öðru en allir framsóknarmenn greiði atkv. móti þessu. Það var fellt í Nd. og samþ. annað fyrirkomulag, sem e.t.v. má gagnrýna, en meðan ekki finnst annað betra, þá er að hafa það. Ég tel, að samþykkt þessarar till. gæti ekki orðið til annars en tefja málið eða jafnvel stofna því í mikla hættu.
Þar sem till. á þskj. 327 yrðu hins vegar til að drepa frv., ef samþ. yrðu, mun ég greiða atkv. móti þeim brtt., sem fyrir liggja.