10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)
16. mál, fiskveiðasjóður Íslands
Lúðvík Jósefsson:
Ég vil einnig mæla eindregið með því, að málinu verði frestað til morguns. Það hafa verið samþ. við það tvær nokkuð mikilsverðar brtt. í Ed. Önnur er sú, að stjórn fiskveiðasjóðs verði falið að úthluta styrkjunum í stað Útvegsbankans, sem hv. dm. hér voru ekki sammála um.
Af því ég vil, að frv. þetta nái fram að ganga og ekki sé stofnað til togstreitu milli d. um það, þá þætti mér æskilegt, að sjútvn. fengi tóm til að athuga þessar brtt. og gera tilraun til samkomulags. Ég vildi því, að málinu yrði frestað til morguns.