10.02.1943
Neðri deild: 54. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1071 í B-deild Alþingistíðinda. (1808)

16. mál, fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. meiri hl. (Sigurður Kristjánsson):

Ég sé það nú, að enginn tími muni vera til að fresta þessu máli. Annars er það rétt, sem hv. 6. landsk. sagði, að talsvert mikilsverðar breyt. hafa verið gerðar í Ed. Einkum er það breyt. með hækkun vaxtanna, því að ég legg ekki mikið upp úr, hver úthlutar styrkjunum, — treysti öllum vel til þess.