02.03.1943
Efri deild: 67. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (1877)

80. mál, brúargerð

Bernharð Stefánsson:

Ég skal gjarnan verða við tilmælum hv. þm. Barð. um að stytta umr. um málið, en lengra get ég ekki farið.

Hv. frsm. n., 1. þm. S.-M., tók upp hanzkann fyrir hv. þm. Barð. og svaraði því, sem ég hafði víkið að í ræðu hans. Ég tel þetta óþarfa af hv. frsm., því að hingað til hefur hv. þm. Barð. talið sig geta svarað fyrir sig hér í hv. þ., og bjóst ég við, að svo yrði enn.

Ég vona, að menn minnist þess að ég sagði, að hv. flm. þessa frv. hefði gert tilraun til þess að opna brúal., og ég álit það opnun að breyta þeim. Mun ég svo ekki hirða frekar um hártoganir hv. 1. þm. S.-M. um þessi ummæli mín. Hann sagði, að samgmn. hefði tekið til greina framkomnar till., og ég efast ekki um, að þetta sé rétt, en hún hafnaði einnig síðar framkomnum brtt., að því er virtist vegna þess, að þær komu ekki fram við 2. umr. Út af þessu vil ég spyrja, til hvers menn haldi, að 3 umr. séu hafðar um mál. Er það ekki til þess, að þm. geti borið fram brtt. við þá umr., ef þeir óska þess.

Hv. frsm. minntist á það, að misræmi það, sem orðið hefði á þessum málum, stafaði af sleifarlagi fyrri ára. Ég er honum alveg sammála um þetta. En hvers vegna er þá ekki reynt að lagfæra þetta í stað þess að láta fyrra sleifarlag halda áfram, því að breyt., sem þetta frv. fer fram á, stefna í sömu átt og áður, en alls ekki til neinnar lagfæringar á þessu sleifarlagi.

Hann sagði, að hv. n. hefði farið eftir till. vegamálastjóra, og eftir því virðist hún enga meiningu hafa haft sjálf. Ég tel það mjög varhugavert fyrir hvaða n. sem er að fela embættismanni, þótt góður sé, algert einveldi í svona málum, og leitast ekki við að gera sér sjálf neina grein fyrir málinu.

Það er ekki langt síðan, að till. hliðstæðs embættismanns voru hafðar að engu hér í hv. d. Það er á misskilningi byggt hjá hv. þm. Barð. að halda, að till. mínar séu aðeins bornar fram af hégómaskap en ekki nauðsyn. Það er brýn nauðsyn að fá þessar brýr, sem ég fer fram á. Ég býst annars við, að það sé líkt á komið með mér og þessum hv. þm., að hann hugsi um sitt kjördæmi, þegar hann sér, að önnur héruð fá einhver fríðindi. Að sönnu skal ég viðurkenna það, að þessar brýr koma á sínum tíma, en engu að siður er brýn nauðsyn að fá þær.

Ég segi ekki, að þessi hv. samgmn. hafi brotið meira af sér en aðrar samgmn. hér á hv. Alþ., en tónninn í hv. nm. er óviðkunnanlegur og hrokafullur. Þeir virðast ekki vita, að þingsköp leyfa þm. að bera fram brtt. á hvaða stigi máls sem er. Nú er eins og hv. nm. vilji banna okkur að bera fram brtt. við 3. umr.

Út af ummælum hv. þm. Barð. um fjvn., get ég tekið það fram, að þm. í fjvn. hafa skipzt á að tala við einstaka þm. um, hvað sé mest aðkallandi í héruðum. Þessi aðferð hefur verið viðhöfð síðan 1935, og allir hv. þm. vita þetta nema e.t.v. þessi hv. þm. Hv. þm. ráðlagði mér að taka upp aðra þingsiði. Ég hef nú setið á Alþ. um 20 ára skeið og geri ekki ráð fyrir að eiga eftir að sitja mjög lengi framvegis, svo að ég veit ekki, hvort það tekur því fyrir mig að fara að taka upp nýja siði hér. Að minnsta kosti mun ég ekki taka upp þingsiði þessa hv. þm., sem talar í hverju einasta máli, sem á dagskrá er. Þann sið mun ég aldrei taka upp.