04.02.1943
Neðri deild: 49. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1109 í B-deild Alþingistíðinda. (1900)

126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.

Pétur Ottesen:

Þetta mál hefur legið fyrir landbn. núna undanfarið, að ég ætla, og nokkuð verið athugað í n., þó að því væri ekki komið á framfæri fyrr en nú. Það má fullkomlega viðurkenna þann tilgang, sem í frv. felst og er æskilegur, — að koma kartöfluræktinni og verzlun með kartöflur í það horf, sem stefnt er að.

Hitt er atriði, sem ég vildi mælast til við n., að hún tæki til athugunar: Hvort rétt sé að setja skilyrðislaust þegar í byrjun svo strangar reglur um flokkun, sem í 6. gr. frv., því að þar er ákveðið, að á nokkrum stöðum í landinu, þar sem mest er framleitt, skuli allar kartöflur seldar í verzlunum í þrem flokkum, úrvalsflokki, I. og II. flokki, og að þessi flokkun eigi að fara fram eftir tegundum. Það er ekki miðað við venjuleg gæði, þ.e.. hæfilega stærð og að kartöflur séu óskemmdar o.s.frv., heldur alveg sérstaklega við tegundir. (BÁ: Nei, það á að miða við gæði). Við gæði, segir hv. þm. Mýr. En hér stendur skýrum stöfum: „Í úrvalsflokki séu aðeins beztu tegundir.“ Ég sé ekki betur en að flokkunin nái til þess og að það eigi að flokka eftir tegundum, enda tók hv. frsm. skýrt og greinilega fram, að svona ætti það að vera. Ég held, eins og þessum málum er háttað nú, þar sem flestir rækta margar tegundir, allar í hrærigraut, þá verði þetta, meðan engri skipun er á komið, ákaflega miklum erfiðleikum háð og kostnaðarsamt að flokka eftir þessum reglum. Hitt er annað mál, þegar farið væri að rækta kartöflur eftir tegundum, og þær kæmu aðgreindar frá seljandanum, þá horfir málið öðruvísi við. Mér finnst því fyrsta stigið til að gera l. framkvæmanleg sé að gera gangskör að því, að ræktun á kartöflum sé komið í það horf, að hver tegund sé ræktuð út af fyrir sig og ræktaðar eingöngu þær tegundir, sem eru bragðbeztar, fljótvaxnar og yfirleitt gefa beztan árangur. Ég vil því beina því til n., hvort ekki sé hyggilegast, að undantekningarákvæði, tímabundin, séu sett á svona strangt mat á kartöflur eftir tegundum, eins og gert er ráð fyrir í frv. Hins vegar sé það gert að skilgreina kartöflutegundir betur en nú er gert, og velja þær tegundir til útsæðis, sem bezta raun gefa og hafa mest mótstöðuafl gegn þeim bakteríum, sem á kartöflur sækja og valda skemmdum. Ég veit ekki, hvað miklum fagmönnum við höfum á að skipa, sem eru færir um að flokka kartöflur eftir tegundum, því að það er meira verk en svo, að bændur geti gert það sjálfir. Því er ekki óhyggilegt að setja tímatakmark til þess að tryggja, að þessi l. verði meira en pappírsblað. En ég er hræddur um, að þau verði ekki annað, ef hér er ekki frekar að gert.

Ég vildi aðeins skjóta þessu til hv. n. Ég tel æskilegt að koma þeim umbótum á að gæta þess meira en verið hefur að rækta betri kartöflur og koma meira skipulagi á söluna, sem að ýmsu leyti hefur verið í óæskilegu formi.