12.03.1943
Efri deild: 72. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í B-deild Alþingistíðinda. (1922)

126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.

Frsm. (Páll Hermannsson):

Ég er sammála hv. 3. landsk. um það, að ákvæðin til bráðabirgða ættu að gilda stutt, og ég er einnig sammála honum um, að ákvæðin um flokkunina eru ein hin þýðingarmestu í frv.

Það hefur verið raunalegt að sjá seldar saman alls konar tegundir af kartöflum, bæði góðum kartöflum og þeim, sem tæplega geta kallazt mannamatur, alla vega með farnar, en allar við sama verði.

Nú hafa tveir hv. þm. gert að umræðuefni tvo fyrstu málsliðina í 1. mgr. 5. gr. frv., þar sem talað er um verðlag á kartöflum. Ég skal játa, að það mun vera breitt bilið á milli gangverðs á kartöflum í nágrannalöndunum og hér, og hv. þm. munu sjá, að til þess liggja eðlilegar ástæður. En orðalagið — að miða við markaðsverð á erlendum markaði fyrir kartöflur og taka til greina framleiðslukostnaðinn, — það stendur í eldri l. um grænmetisverzlun ríkisins. Hef ég að vísu veitt því athygli, að þetta getur hálfilla samrýmzt hvort tveggja, en ég lít á það sem málamiðlun eins konar, sem báðir aðilar, sem þarna eiga hlut að máli, ættu að sætta sig við. Sjálfur efast ég um, að hægt verði að framleiða hér kartöflur með sama verði og er á þeim í nágrannalöndunum. En hitt sjá allir, og það er gleðiefni fyrir landsmenn, hve kartöfluræktin er þó orðin mikil hjá okkur og hve gagnleg hún er, ekki hvað sízt á þessum ófriðartímum, þegar erfitt er að fá frá útlöndum svo að segja hvaða vöru sem er. En kartöfluræktin og verzlunin með þá vöru þarf að færast í heilbrigðara horf, og eru miklir möguleikar fyrir hendi hjá okkur til þess, að svo geti orðið.