19.12.1942
Neðri deild: 22. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í B-deild Alþingistíðinda. (193)
85. mál, dómnefnd í verðlagsmálum
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Háttv. þingdeild. — Eins og hæstv. forsrh. tók fram í stefnuskrárræðu sinni, telur ráðuneytið höfuðverkefni sitt vera það að vinna bug á dýrtíðinni, fyrst og fremst með því að setja skorður við frekari verðbólgu. Í samræmi við þessa stefnu hefur ráðuneytið lagt fram frv. um breytingu á I. um dómn. í verðlagsmálum, sem heimilar ríkisstj., ef að l. verður, að setja hömlur á við hækkun vöruverðs frá því, sem nú er. Ég geri ráð fyrir, að þessi ákvæði verði látin standa til febrúarloka. Ríkisstj. telur, að þessi heimild sé meginskilyrði þess, að hægt sé að hafa hemil á verðbólgunni. Þær ráðstafanir, sem hér er um að ræða, eru að vísu ekki einhlítar til að halda öllu í skefjum, því að þetta frv. tekur ekki til vörutegunda, sem verðlagðar eru samkvæmt sérstökum I. og ekki heldur til grunnkaups. Þessi lagasetning væri vissulega lítils virði, ef ekki væri samtímis tryggt, að verðlag í þessum greinum breyttist ekki þann tíma, sem ákvæði frv. eiga að vera í gildi. En ríkisstj. telur sig hafa fengið slíka tryggingu. Þess vegna kemur hún nú til Alþ. og biður um heimild þá, sem farið er fram á með frv. Ríkisstj. hefur fengið yfirlýsingu frá kjötverðlagsn. þess efnis, að kjöt skuli ekki hækka í verði þennan tíma nema með leyfi landbrh. Mjólkurverðlagsn. þrjár í landinu hafa gefið sams konar loforð, að því er snertir verð á mjólk, og grænmetisverzlun ríkisins hefur lofað að hækka ekki verð á kartöflum. Þá hefur ríkisstj. fengið umsögn frá Alþýðusambandi Ísl., þar sem talið er öruggt, að grunnkaupshækkanir muni engar fara fram á tímabilinu til febrúarloka. Ráðuneytið leggur áherzlu á það, að þessar ráðstafanir hafi ekki í för með sér aukaútgjöld fyrir ríkissjóð ag telur ekki heldur líklegt, að til þess þurfi að koma, en lýsir hins vegar yfir því, að ef slík útgjöld skyldu samt reynast óhjákvæmileg, munu engar greiðslur fara fram nema í samráði við Alþ. Þá leggur ráðuneytið áherzlu á, að verðlagseftirlitið verði meira og betra en verið hefur til þessa.
Ráðuneytinu er áhugamál, að frv. verði afgreitt með afbrigðum nú í dag, því að það vill geta byrjað þegar í stað að framkvæma þessi ákvæði.