17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1117 í B-deild Alþingistíðinda. (1935)
126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.
Gísli Jónsson:
Ég hafði búizt við annarri afgreiðslu þessa máls af hendi hv. landbn., fyrst hún tók það á annað borð til meðferðar. Ég hef áður bent á það, að niðurlag 5. gr. þyrfti umbóta við, og ég hef gert grein fyrir ástæðunni til þess. Hv. landbn. hefur ekki tekið þetta til greina. Ég vil því hér með leggja fram skrifl. brtt. þess efnis, að 2. málsl. 5. gr. frv. falli niður.