17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1119 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)

126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. — Ég er að verulegu leyti sammála hv. þm. Str. um það, að það megi heita með öllu ógerlegt að miða verð á innfluttum kartöflum við framleiðslukostnaðarverð þeirra hér á hverjum tíma. Til viðbótar því, sem hann sagði, vil ég benda á það, að framleiðslukostnaður hér á landi er svo gífurlega misjafn, að það verð, sem hægt er að framleiða fyrir á einum staðnum, getur verið algerlega ófullnægjandi annars staðar. Það verður því að miða við það, að sæmileg ræktunarskilyrði séu fyrir hendi. Hér er þá engan veginn átt við framleiðslu til heimilisþarfa, sem mun alls staðar borga sig, heldur er hér átt við framleiðslu fyrir markað, en sölukartöflur eiga fyrst og fremst að vera ræktaðar á þeim stöðum, þar sem skilyrði eru bezt. Það mun þó alltaf verða erfitt að ákveða, hvað telja skuli framleiðslukostnaðarverð. Ég hygg því bezt að miða við markaðsverð erlendis að viðbættum flutningskostnaði, enda hefur gjaldeyris- og innflutningsnefnd það í hendi sinni að takmarka innflutning þessarar vöru sem annarra. Ég get því ekki fallizt á brtt. hv. 2. þm. Árn., þar sem ég hygg, að það sé einmitt markaðsverð erlendis, sem eigi að miða við. Ég benti á það við 2. umr., að eins og niðurlag 5. gr. er, þá held ég, að það stangist. Mér skildist á nm. í landbn., að væri höfð hliðsjón af framleiðslukostnaði innanlands, þá bæri að miða við það, að ræktunarskilyrði væru sæmileg.

Viðvíkjandi brtt. hv. þm. Barð. er það að segja, að ég sé ekki ástæðu til þess að samþykkja þá till. En verði hins vegar brtt. hv. 2. þm. Árn. samþ., þá mun ég greiða brtt. hv. þm. Barð. atkv., því að mér þykir það sýnt, ef miðað verður við framleiðslukostnað innanlands, þá eigi innfluttu kartöflurnar ekki að notast til verðjöfnunar. Ég tel það sjálfsagt, ef þeirri reglu verður fylgt, að þá verði verð á innfluttum kartöflum ekki bundið öðruvísi en með almennum verðlagsákvæðum. Ég mun því greiða atkv. móti brtt. hv. 2. þm. Árn., en að henni samþykktri mun ég greiða atkv. með brtt. hv. þm. Barð.