17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.
Eiríkur Einarsson:
Herra forseti. — Það hafa nú spunnizt út af þessu nokkrar umr., en það eru einkum aths. frá hv. þm. Str., sem ég þarf að taka til athugunar. Ég tók svo eftir, að hann teldi sig ekki geta fallizt á það að hafa tvö sjónarmið eins og kæmi fram í brtt. minni, þannig að aðallega skyldi miða við framleiðslukostnaðarverð innanlands, en þó með nokkurri hliðsjón af markaðsverði í nálægum löndum. Það er rétt, að ég hef gert ráð fyrir, að tekið yrði tillit til hvors tveggja, en þess ber að gæta, að annað s;jónarmiðið er sterkt, en aðeins á að hafa hliðsjón af hinu, þannig að það er mjög veikt samanborið við hið fyrra. En ef þeir þm., sem lita eins á þetta mál og hv. þm. Str., fallast á að halda niðurlagi 1. mgr. 5. gr. óbreyttu, þá vil ég benda þeim á það, að þar er nú sama ásteytingin, þar eru tvö sjónarmið. Þar segir svo: „Verðskráning garðávaxta skal aðallega miða við markaðsverð garðávaxta í nálægum löndum, að viðbættum flutningskostnaði.“ Enn fremur segir þar á eftir: „Þó skal þess jafnframt gætt, að framleiðendum sé tryggt hæfilegt framleiðsluverð.“ Ég sé ekki betur en að þetta sé að því leyti verra, að það brýtur í bága hvað við annað. Þessi mótbára hefur því ekki við nein rök að styðjast, heldur, er hún einber vitleysa. Hitt játa ég, að frv. er með tilliti til þeirra ákvæða, sem um er deilt, ekki þannig úr garði gert, að það þoli gagnrýni. Það er mun auðveldara að láta lagabókstafinn líta vel út en að tryggja það, að hann verði framkvæmdur vel eftir á. Ég er með þessu ekki að halda því fram, að sú viðleitni, sem kemur fram í frv., sé ekki góðra gjalda verð. Frv. er að mörgu leyti til bóta, enda hef ég mælt með því.
Hv. þm. Str. tók það fram, að vinnubrögð við garðyrkju væru með meira nýtízku sniði en tíðkaðist um aðra atvinnuvegi hérlendis. Þetta er rétt, en þá ætti einnig að vera auðveldara að framleiða án gífurlegs tilkostnaðar og því öruggara ætti að vera að miða við framleiðslukostnaðarverðið. Brtt. mín ætti ekki að koma neitt einkennilega fyrir sjónir manna hér, því að sú skoðun er nú komin inn í þingsali, að það sé vísitölukerfið eða tilkostnaðarkerfið, sem eigi að leggja til grundvallar. Er þá nokkur ástæða til þess að hafa það öðruvísi með kartöflur? Nei, alls ekki. Þótt illa áraði einhvern tíma, svo að líklegt yrði, að framleiðsluverðið færi upp úr öllu valdi, þá er ekki þar með sagt, að það eigi að verka þannig á hinar erlendu kartöflur, heldur gæti það verkað hvað á annað. Ef svo yrði ágóði af sölunni á innfluttu kartöflunum, mætti nota hann til verðjöfnunar milli framleiðenda og neytenda.