17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1121 í B-deild Alþingistíðinda. (1941)
126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.
Þorsteinn Þorsteinsson:
Hv. þm. Str. vildi, að landbn. tæki aftur til athugunar niðurlagsákvæði 5. gr., en ég hygg, að hann hafi raunar átt við 2. málsgr. Út af þessu vil ég segja það, að eftir því, sem ég lít á málið, þá virðist mér ekki nauðsynlegt að athuga þetta mál frekar í n., vegna þess að þessi ákvæði munu ekki rekast á önnur l., þ.e.a.s. l. um verðlag, því að þar segir, að þau l. nái ekki til vörutegunda, sem verðlagðar eru samkv. sérstökum l.
Hv. þm. Str. sagði, að það gæti orðið uppskerubrestur og innlendar kartöflur yrðu þá e.t.v. seldar á 50–60 kr. tunnan, en hinar útlendu yrðu kannske ekki dýrari en 20–30 kr. tunnan. En þetta finnst mér einmitt vera dæmi upp á það, að þetta ákvæði verði að standa, og það megi ekki nema það burtu. Ef uppskerubrestur yrði t.d. norðanlands, eins og oft vill verða, og þangað yrðu fluttar útlendar kartöflur og seldar fyrir 30 kr. tunnan, en sunnanlands yrði til innlendar kartöflur, sem væru seldar á 50–60 kr. tunnan, þá er hætt við, að slíkt mundi valda óánægju, og væri því nauðsynlegt að koma á verðjöfnun. Enda leggur forstjóri grænmetisverzlunarinnar mikið kapp á, að þessu ákvæði verði ekki breytt, því að hann taldi, að það mundi gera truflun á verðlag og verzlun með kartöflur. Ég held því, að rétt sé að láta þetta ákvæði standa, þangað til reynslan sýnir, hvort það sé erfitt í framkvæmd eða ekki.