17.03.1943
Efri deild: 74. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (1943)

126. mál, verzlun með kartöflur o.fl.

Hermann Jónasson:

Ég skal ekki tala um þær brtt., sem fyrir liggja, að nýju, heldur ætla ég að minnast á ýmislegt, sem hv. 2. þm. Árn. sagði um þetta mál. Hann vildi halda því fram, að sín brtt. hnekkti því, sem ég hélt fram um þessa brtt. Það má benda á fordæmi um þetta, það er um verð á síldarmjöli. Einn hv. þm. vildi, að það væri ákveðið þannig, að það færi eftir framleiðslukostnaði og jafnframt væri tekið tillit til þess verðs, sem á því væri á erlendum markaði. En þetta reyndist óframkvæmanlegt.

Hvað viðvíkur niðurlagi 5. gr., þá vil ég segja það, að það, sem kom mér til þess að gera þessa aths., var það, hvað orðalagið er óákveðið. „Hæfilegt framleiðsluverð“ miðað við tilkostnað, getur verið mjög hátt, en sé miðað við eðlilegt árferði er allt öðru máli að gegna. Hv. 1. þm. N.- M. sagði, að þetta ákvæði út af fyrir sig væri ekki hættulegt, því ef uppskerubrestur yrði, mundi verða ákveðið hæfilegt verð, miðað við eðlilegt árferði. Ef það væri alveg öruggt, að ákvæðin um það væru nægilega skýr, þá væri ég honum alveg sammála. Hv. þm. Dal. kom inn á þetta sama. Hann sagði, ef verð yrði ákveðið sérstaklega hátt með tilliti til þess, hvað framleiðslukostnaður væri mikill vegna lélegs árferðis, þá yrði þetta framkvæmanlegt þannig, ef innlendar kartöflur yrðu seldar á 60 kr. tunnan vegna lélegs árferðis, en þær útlendu kostuðu 20 kr. tunnan, þá yrði komið á verðjöfnun. Að þessu leyti er ég honum alveg sammála, því að auðvitað væri ófært annað en að hafa sama verð á kartöflunum um allt land. En 2. málsgr. er líka dálítið óskýr, því að þar stendur: „Innflutta garðávexti má aldrei selja lægra verði en innlenda.“ Þetta má skilja þannig, að fyrst megi ákveða verð á innlendri framleiðslu og síðan verðjafna. Ég er víss um það, ef þm. athuga þessi ákvæði, þá sjá þeir, að það er hægt að leggja tvær meiningar í bæði ákvæðin. Ef hv. landbn., vegna þess að hún er búin að athuga þessi ákvæði áður, vill ekki taka þetta til athugunar á ný, er ekki um annað að gera en að fá annað orðalag, sem er ákveðið. En ef það fæst heldur ekki, þá býst ég við, að ég neyðist samt til að greiða atkv. með ákvæðunum, í þeirri von, að þau verði skilin á þann veg sem hv. landbn. hefur skýrt þau. Því að það er mikil nauðsyn á að koma þessu frv. fram, og fá fullkomið skipulag á sölu þessarar vöru, svo mikið sem gert hefur verið til að auka framleiðslu hennar.