11.01.1943
Efri deild: 28. fundur, 61. löggjafarþing.
Sjá dálk 1127 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)
93. mál, hafnarlög fyrir Húsavík
Flm. (Jónas Jónsson):
Það, sem hér er um að ræða, er viðbót við hafnarlög Húsavíkur frá 1933, og er þetta frv. byggt á sama grundvelli og frv. það, sem hér liggur fyrir Alþingi um breyt. á hafnarlögum fyrir Hafnarfjörð. Það stendur eins á á Húsavík, að þar er eldri löggjöf, en vegna þeirrar verðhækkunar, sem orðin er á öllu, er gert ráð fyrir of lágum upphæðum, og er tilgangur þessa frv. að fá, ef hægt er, tryggingu fyrir ríkissjóðsframlagi til þess að byggja höfn á Húsavík og ríkisábyrgð. Það hefur verið gerð bryggja á Húsavík, sem jafnframt á að vera armur í hafnarbygginguna, en það vantar skjólgarð, og er talið, að hann muni kosta 2 millj. króna. Þegar svo skjólgarðurinn verður kominn, eru jafnframt sköpuð örugg skilyrði fyrir síldarverksmiðju á höfðanum fyrir norðan. Þar er mikið landrými, og mundi fara vel um síldarverksmiðju þar. Jafnframt yrði Húsavíkurhöfn öruggt lægi fyrir vélbátaflota þorpsins, sem ekki er nú, af því að aðeins annar armur hafnarinnar er kominn. Þess vegna hafa vélbátar ekki eins og nú er skjól á höfninni á vetrum.
Hér fylgir til skýringar útdráttur úr fundargerð hafnarn. Húsavíkur frá í sumar og samkomulag, sem gert var við stj. Síldarverksmiðju ríkisins og sýnir, hve mikið álit hún hefur á þessum stað til síldarbræðslu, er hún skuldbindur sig til að gera þarna 10 þús. mála verksmiðju, þegar byggður hafi verið skjólgarður með bryggju, en eins og tekið er fram, þarf sú bryggja að vera minnst 60 m og á 6 m dýpi.
Hugsa Húsvíkingar sér að byrja helzt nú í sumar á þessum hafnargarði og byrja á því auðveldasta, þar sem grynnst er, ljúka því eins og hægt er, og gera svo síðar dýrari partinn, sem er fyrir uppskipun, og þegar því er lokið, er ekkert því til fyrirstöðu, að síldarbræðsla hefjist á þessum stað, sem talinn er einn sá bezti, næstur Siglufirði, fyrir síldarverksmiðjur, jafnframt því, sem höfnin sjálf á að vera örugg fyrir bátaflota þorpsins.
Hafnarn. hefur gert nokkrar ráðstafanir til lántöku, ef ríkisábyrgð fengist, og vænta menn þess, að þingið taki vel í þetta mál, enda má segja, að það hafi verið ráðið 1933, þegar annar armurinn var byggður, og að nú sé komið að því að ljúka verkinu.
Fjárhagsmöguleikar hafnarinnar liggja aðallega í byggingu síldarverksmiðju og eins hinu, að vélbátafloti kauptúnsins aukist.
Ég óska svo, að frv. verði að lokinni umr . vísað til sjútvn.